Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1375. fundur 16. júlí 2026 kl. 08:10 - 09:48 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Stefán Hannibal Hafberg varamaður
    Aðalmaður: Kristján Þór Kristjánsson
  • Tinna Rún Snorradóttir varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson varaáheyrnarfulltrúi
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Móttökuhús Sundabakki - Útboð - 2026050128

Tillaga frá 272. fundi hafnarstjórnar sem haldin var þann 8. júlí 2026. Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að samið verði við lægstbjóðanda, All verk ehf að upphæð 326.165.756.34 kr. varðandi verkið Hrafnatangi móttökuhús og að gert verði ráð fyrir framkvæmdinni á fjárhagsáætlunarvinnu haustsins fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðandi, All verks ehf. að upphæð 326.165.756,34 kr. og að gert verði ráð fyrir framkvæmdinni í fjárhagsáætlunarvinnu haustsins fyrir árið 2027.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 2025120020

Á 1371. fundi bæjarráðs, þann 18. júní 2026, var lagt fram mál nr. 2026060125, varðandi erindi Ernu Höskuldsdóttur, skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri, dags. 13. maí 2026, varðandi aukningu á stöðugildum skólans skólaárið 2026-2027 vegna fjölgunar nemenda. Einnig lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 15. júní 2026. Bæjarráð samþykkti aukningu á einu stöðugildi vegna eins starfsmanns fyrir kennslu 1. bekkjar veturinn 2026-2027, og fól bæjarstjóra að gera viðauka við launaáætlun og leggja fyrir fund bæjarráðs til samþykktar.

Er viðauki 10 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar lagður fram til samþykktar.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er enginn.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og verður rekstrarniðurstaðan kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og verður rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Bæjarráð samþykkir viðauka 10 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna aukningu á stöðugildum við Grunnskóla Þingeyrar skólaárið 2026-2027 vegna fjölgunar nemenda.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 08:18

3.Ársfjórðungsuppgjör 2026 - 2026070077

Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 13. júlí 2026, um niðurstöðu uppgjörs janúar til maí ásamt stöðu viðhalds í lok tímabilsins. Uppgjörið sýnir rekstrarafgang A- og B-hluta upp á 517,5 m.kr. Fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil gerir ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 671,5 m.kr. Rekstrarafgangur er því 154 m.kr. lægri en áætlað er.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tillögur að aðhaldsaðgerðum og leggja fyrir bæjarráð.
Edda María Hagalín vék af fundi kl. 09:26

4.Úrbætur í Tunguhverfi - 2026070081

Lagt fram erindi Steineyjar Ninnu Halldórsdóttur f.h. íbúa í Tunguhverfi, dags. 29. júní 2026 þar sem fjallað er um aðstöðu gangandi vegfarenda og leiksvæða á svæðinu.
Bæjarráð þakkar íbúum í Tunguhverfi fyrir erindið.
Bæjarráð vísar jafnframt erindinu til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd og felur bæjarstjóra að koma í framkvæmd þeim atriðum í bréfinu sem hægt er að bregðast við fljótt.

5.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - fundargerðir og fleira 2026 - 2026020030

Lagt fram til kynningar kynningarbréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, dags. 13. júlí 2026 sem sent er aðildarsveitarfélögum og kynnir starfsemi samtakanna.
Lagt fram til kynningar.

6.Samtök orkusveitarfélaga - ýmis erindi 2026-2027 - 2026070083

Lagt fram til kynningar erindi Bryndísar Gunnlaugsdóttur, lögfræðings, f.h. Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 13. júlí 2026 þar sem kynnt er starfsemi, hlutverk og áherslur Samtaka orkusveitarfélaga. Jafnframt er lögð fram samantekt af stöðu mála varðandi skattlagningu orkumannvirkja.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 675 - 2607005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 675. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldin var þann 7. júlí 2026.

Fundargerðin er í 1. lið.
Lagt fram til kynningar.

8.Hafnarstjórn - 272 - 2607009F

Lögð fram til kynningar fundargerð 272. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 8. júlí 2026.

Fundargerðin er í 4. liðum.
Lagt fram til kynningar.

9.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 46 - 2607004F

Lögð fram fundargerð 46. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 8. júlí 2026.

Fundargerðin er í 1. lið.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:48.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?