Vinnslutillaga að breytingu á Aðalskipulagi 2008-2020 vegna Hvítasands í landi Þórustaða
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar birtir til kynningar, vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 á Hvítasandi, Önundarfirði í landi Þórustaða undir nýtt verslunar- og þjónustusvæði fyrir sjóböð, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, unnin af ráðgjöfum EFLU. Stofnað er nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem fær heitið VÞ27 á svæði sem nú er skilgreint landbúnaðarsvæði/óbyggt svæði í aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020.
Á verslunar- og þjónustusvæðinu verður stofnuð lóð fyrir baðstað úr jörð Þórustaða, landnúmer 141035. Aðkoma að svæðinu verður frá Valþjófsdalsvegi nr. 625 um vegslóða sem fyrir er á jörðinni. Samhliða breytingu á aðalskipulagi er unnið að deiliskipulagi fyrir baðstaðinn og eru skipulagsáætlanirnar kynntar saman.
Markmið með breytingum eru m.a. að efla Holtsfjöru sem áfangastað fyrir gesti og heimafólk til að njóta einstakrar náttúru, útiveru bað- og strandferða, byggja upp áfangastað í ferðaþjónustu með hliðsjón af staðaranda svæðisins með mannvirkjum sem eru látlaus, í sátt við umhverfi sitt og staðsetningu, efla líf á áfangastað sem nú þegar er vinsæll áningarstaður heimamanna fyrir sjósund og strandarferðir.
Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina: skipulagsgatt.is, mál nr.464/2026. Hægt að skila ábendingum og umsögnum við tillögugerðina, rafrænt um skipulagsgáttina frá 17. apríl 2026 til og með 15. maí 2026. Umhverfis- og eignasvið veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar við umsagnir. Vinnslutillagan verður einnig aðgengileg á uppdrætti og greinargerð með forsendum breytinga ásamt umhverfismatsskýrslu, á bæjarskrifstofum og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.
Opið hús verður haldið á Edinborgarhúsinu á Ísafirði, mánudaginn 4. maí 2026 kl. 17:00 til 19:00.
Vakin er athygli á því að aðeins er um að ræða vinnslutillögu breytinga á aðalskipulagi en ekki formlega auglýsingu.
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar