Bæjarstjórnarfundur í Blábankanum

Fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar verður á morgun haldinn í Blábankanum á Þingeyri og hefst klukkan 17. Hálftíma fyrr býðst íbúum að hitta bæjarfulltrúa á sama stað yfir óformlegu spjalli ef áhugi er fyrir hendi, og við minnum á að fundir bæjarstjórnar eru opnir gestum. Útsending af fundinum verður með öðrum hætti en venjulega, en slóð á streymi verður hægt að nálgast á undirsíðunni „bæjarstjórnarfundir“ á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.