Bæjarstjórn: Áskorun um að jafna aðstöðumun barna og ungmenna til íþróttaiðkunar óháð búsetu

Á 570. fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar samþykkti bæjarstjórn samhljóða bókun þar sem skorað er á stjórnvöld að grípa til markvissra aðgerða til að jafna aðstöðu barna og ungmenna til íþróttaiðkunar óháð búsetu. Málið var tekið inn með afbrigðum að beiðni forseta bæjarstjórnar í ljósi umræðu í fjölmiðlum um háan ferðakostnað íþróttafélaga á landsbyggðinni.

KSÍ hefur skorað á yfirvöld íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026. Í henni var lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi. Hérna má sjá áskorun KSÍ í heild sinni

Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að um kerfislægt misrétti sé að ræða sem ekki verði unað við. Íþróttaiðkun barna og ungmenna sé ekki munaður heldur grundvallarþáttur í lýðheilsu, félagslegri þátttöku og uppbyggingu samfélaga. 

Bókun bæjarstjórnar:

"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar tekur undir áskorun Knattspyrnusamband Íslands um að grípa þurfi til aðgerða til að jafna aðstöðumun barna og ungmenna til íþróttaiðkunar óháð búsetu.

Bæjarstjórn telur ljóst að hér sé um kerfislægt misrétti að ræða sem er óásættanlegt. Íþróttaiðkun barna er ekki munaður heldur grundvallarþáttur í lýðheilsu, félagslegri þátttöku og uppbyggingu samfélaga. Þegar fjölskyldur standa frammi fyrir milljónakostnaði vegna þátttöku barna sinna er ljóst að jafnræði er ekki til staðar.

Bæjarstjórn skorar því á stjórnvöld að taka höndum saman með íþróttahreyfingunni og sveitarfélögum um að tryggja raunhæfan og markvissan stuðning við ferðakostnað barna og ungmenna. Það er ekki ásættanlegt að búseta barna á Íslandi ráði því hvort þau geti tekið þátt í íþróttum. Ef ekkert er að gert mun þessi þróun grafa undan bæði jafnrétti og uppbyggingu íþróttastarfs á landsbyggðinni.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra."

Samþykktin var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða, 9–0. Bæjarstjóra var falið að koma bókuninni á framfæri við viðeigandi ráðherra.