570. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 570. fundar fimmtudaginn 16. apríl nk. kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.
Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Almenn mál
1. Slit Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks - 2026040011
Tillaga frá 1366. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki tillögu stjórnar Byggðasamlags Vestfjarða um að starfsemi verði hætt og félaginu slitið.
2. Pollgata - Göngustígur, lagnir og færsla sjóvarna - 2026030069
Tillaga frá 269. fundi hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að gerð verði frumkostnaðaráætlun við Edinborgar- og Bæjarbryggju. Einnig er lagt til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir framkvæmdum í 5 ára fjárfestingaráætlun.
3. Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundabakki - 2024100012
Tillaga frá 269. fundi hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila breytingu deiliskipulags við harðviðarbryggju, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustuaðila m.t.t. húsnæði og aðstöðu.
Hafnarstjóra er falið að boða til fundar með hagsmunaaðilum.
4. Gjaldskrár skólaárið 2026-2027 - 2026030290
Tillaga frá 40. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að eftirfarandi gjaldskrár haldist óbreyttar milli ára sem framlag Ísafjarðarbæjar til að mæta áhrifum verðbólgu á fjölskyldur:
-Leikskólar og dagforeldrar
-Skíðasvæði og leiga á skíðabúnaði
-Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
-Grunnskólar, leigu- og þjónustugjöld
-Dægradvöl
-Íþróttaskóli
Nefndin leggur jafnframt til að gjaldskrá skólaskrifstofu hækki um 4%.
5. Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Hvítisandur, Önundarfirði. - 2026030225
Tillaga frá 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila kynningu á vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 á Hvítasandi, Önundarfirði í landi Þórustaða undir nýtt verslunar- og þjónustusvæði fyrir sjóböð, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Áður en tillaga að breytingum á aðalskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
6. Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226
Tillaga frá 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila kynningu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, sbr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Við kynningu á vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands í landi Þórustaða gerðu nefndarmenn athugasemd við niðurstöðu áhrifa framkvæmdanna á samfélag. Skipulagsráðgjafi Eflu uppfærir greinargerð deiliskipulags.
Áður en tillaga að deiliskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
7. Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 2025120103
Tillaga frá 5. fundi nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 8. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að hefja viðræður við Oddfellow um kaup á húsnæði þeirra við Aðalstræti á Ísafirði og hafin verði undirbúningur á kaupum og endurbótum húsnæðisins sem gert verði ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2027.
Fundargerðir til kynningar
8. Bæjarráð - 1366 - 2604002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1366. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 9. apríl 2026.
Fundargerðin er í 7 liðum.
9. Hafnarstjórn - 269 - 2603019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 269. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.
10. Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 5 - 2603015F
Lögð fram til kynningar fundargerð nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
11. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 40 - 2603025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 40. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. apríl 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
12. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 41 - 2604005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 41. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
13. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 669 - 2603020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 669. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026.
Fundargerðin er í 20 liðum.
14. Velferðarnefnd - 501 - 2604001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 501. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 2 liðum.