Auglýsing um styrk til menningarmála 2026
06.02.2026
Fréttir
Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fyrir árið 2026. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar og er umsóknarfrestur til og með 2. mars.
Umsækjendum er bent á að kynna sér reglur um úthlutun styrkja til menningarmála og skilmála menningarstyrkja Ísafjarðarbæjar.
Menningarstyrkir ársins 2026 eru áætlaðir 3,5 m.kr. en styrkur til einstaks verkefnis getur almennt ekki verið hærri en 250.000 kr.
Styrkur greiðist að verkefni loknu, þegar fullnægjandi greinargerð og rafrænn reikningur hafa borist.
Reikningur og greinargerð skulu berast Ísafjarðarbæ fyrir árslok á úthlutunarári.