Auglýsing um stöðuleyfi 2021

Ísafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um stöðuleyfi fyrir gáma, báta og aðra lausafjármuni s.b.r. 2.6. kafla um stöðuleyfi í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Sækja þarf um stöðuleyfi til að láta lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna, þ.m.t. á lóðum.

Ísafjarðarbær innheimtir gjöld vegna útgáfu stöðuleyfa með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 sem hér segir:

Stöðuleyfi hjólhýsa, báta o.þ.h.

24.839 kr. per ár

Stöðuleyfi gáma

45.272 kr. per ár

Gjaldskrá gatnagerðar- og byggingarleyfisgjalda í Ísafjarðarbæ

Sótt er um á www.minarsidur.isafjordur.is eða með því að fylla út umsóknareyðublað og senda á bygg@isafjordur.is eða skila í afgreiðslu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 22. mars 2021.

Athugið að stöðuleyfi eru aðeins veitt til eins árs í senn og fyrirtæki geta ekki reiknað með endurnýjun að ári liðnu. Umsækjendur eru því hvattir til að leita varanlegra lausna.

________________________________________

Kristján Svan Kristjánsson
- Byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar -