Auglýsing um stöðuleyfi

Ísafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um stöðuleyfi fyrir gáma, báta og aðra lausafjármuni s.b.r. 2.6. kafla um stöðuleyfi í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Sækja þarf um stöðuleyfi til að láta lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna, þar með talið á lóðum.

Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um útgáfu stöðuleyfa.

Vakin er sérstök athygli á 7. gr. en þar segir að byggingarfulltrúa er heimilt að láta fjarlægja lausafjármuni sem getið er í reglum þessum og eru án stöðuleyfis

Ísafjarðarbær innheimtir gjöld vegna útgáfu stöðuleyfa með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 sem hér segir:

  • Stöðuleyfi hjólhýsa, báta o.þ.h.:
    27.970 kr. per ár
  • Stöðuleyfi gáma:
    50.970 kr. per ár

Sjá nánar í gjaldskrá byggingarleyfisgjalda.

Sótt er um stöðuleyfi í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar. Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að rafrænum skilríkjum er hægt að fá aðstoð í móttöku Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, við að fylla út umsóknir á pappír.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 23. október 2023.

Athugið að stöðuleyfi eru aðeins veitt til eins árs í senn og umsækjendur geta ekki reiknað með endurnýjun að ári liðnu. Umsækjendur eru því hvattir til að leita varanlegra lausna.

________________________________________

Kristján Svan Kristjánsson

- Byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar -