Auglýsing um óverulega breytingu á aðalskipulagi: Tilfærsla á Bolungarvíkurlínu 1

Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020

Tilfærsla á Bolungarvíkurlínu 1

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti á 491. fundi sínum þann 3. mars 2022 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að Bolungarvíkurlínu 1 er hnikað til vesturs á um 2.250 metra kafla, mest um 400 metra. Greinargerð með rökstuðningi er á skipulagsuppdrætti í mkv. 1:50.000 dags. 7. febrúar 2022.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar, skipulag@isafjordur.is.

- Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar -