Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2025 samþykktur

Ársreikningur Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2025 hefur nú verið kynntur og samþykktur eftir síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 7. maí. Afkoma Ísafjarðarbæjar árið 2025 er jákvæð og skilar afgangi sem nemur 671 milljónum króna en reksturinn var jákvæður um 1.174 milljónir króna árið 2024.

Að sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur, bæjarstjóra er rekstur Ísafjarðarbæjar að styrkjast sem endurspeglar ábyrga fjármálastjórn og samstillt átak starfsfólks og kjörinna fulltrúa. „Stjórnendur fylgja góðu vinnuferli sem snýr að því að ef teikn eru á lofti um breytingar á gjalda- eða tekjulið í rekstraráætlun að gerður viðauki við fjárhagsáætlun sem hjálpar stjórnendum og bæjarfulltrúum að fylgjast með fjárhagsstöðunni.“

„Rekstrarniðurstaða A hluta fyrir árið 2025 sýnir neikvæða niðurstöðu upp á 387,9 m.kr. Fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil gerir ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 606,8 m.kr. Rekstrarniðurstaðan er því 218,9 milljón krónum betri en áætlað var.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.948 m.kr (var 3.031 m.kr. 2024) samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta lækkaði um 142 m.kr. á milli ára."

Pistill bæjarstjóra um ársreikning 2025

Samantekt um niðurstöðu ársreiknings

Lykiltölur úr ársreikningi

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 9.268 m.kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A- og B-hluta. Rekstrartekjur A-hluta námu 7.190 m.kr.

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 671 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 388 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.948 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 1.125 millj. kr.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.948 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 1.125 millj. kr.

Skuldahlutfall í A-hluta er 110,1% árið 202 en var 108,3% árið 2024.

Skuldaviðmið A- og B-hluta er 95% og 72% fyrir A-hluta.

Markmið skuldaviðmiðs A-hluta fyrir árið 2025 var að það yrði minna en 70%.

Veltufé frá rekstri lækkar örlítið á milli ára eða úr 19,5% í 17,2%.

Markmið fyrir árið 2025 var að hlutfallið yrði meira en 8,5%

Handbært fé hækkaði um ríflega 11 m.kr. frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2025 kr. 684 m.kr.

Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru eignasjóður og þjónustumiðstöð auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Byggðasafn Vestfjarða, Eyri(til ársloka 2025), Fasteignir Ísafjarðarbæjar, fráveita, Funi , hafnarsjóður, vatnsveita og þjónustuíbúðir á Hlíf auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,500% en lögbundið hámark þess er 0,625%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall þess og í Cflokki nam álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark þess er 1,32% auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka álagningu A og C flokkanna um allt að 0,33%