Aðalskipulag: Vinnslutillaga vegna ofanflóðavarna á Flateyri

Auglýst er vinnslutillaga vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga 123/2010, vegna ofanflóðavarna á Flateyri. Tillagan felur í sér breytingu á greinargerð og uppdrætti.

Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að auka öryggi fólks á Flateyri og verja mannvirki með eflingu snjóflóðavarna. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér keiluraðir ofan núverandi varnargarða, nýjan leiðigarð, endurbyggingu þvergarðs og nýjan hafnargarð. Auk þess á að dýpka og víkka flóðrás við Skollagarð. Áætluð efnisþörf vegna framkvæmdanna er um 300.000 m3.

Greinargerð

Uppdráttur

Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa fyrir 12. maí 2023 á skipulag@isafjordur.is

Virðingarfyllst,

f.h. skipulagsfulltrúa

_______________________________

Helga Þuríður Magnúsdóttir

verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði