477. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

477. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal á 4. hæð Stjórnsýsluhússins þann 3. júní 2021 og hefst kl. 17.00.

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá

Almenn mál

1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2020 - 2021030109
Bæjarstjóri leggur fram til síðari umræðu ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2020.

2. Áform Artic Fish og Arnarlax um byggingu sláturhúss - 2020090004
Tillaga frá 1155. fundi bæjarráðs, sem fram fór 31. maí 2021, og tillaga frá 222. fundi hafnarstjórnar, sem fram fór 1. júní 2021, um að bæjarstjórn samþykki afgreiðslu máls um áform Artic Fish og Arnarlax um byggingu sláturhúss á Flateyri í samræmi við minnisblað Birgis Gunnarssonar, bæjarstjóra, dags. 28. maí 2021.

3. Samstarfshópur um þjóðgarð á Vestfjörðum - 2019100101
Tillaga frá 1155. fundi bæjarráðs, sem fram fór 31. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki viljayfirlýsingu umhverfis- og auðlindaráðherra, Ísafjarðarbæjar og Vesturbyggðar um málefni þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum og þróun þjóðgarðsins til framtíðar.

4. Fundir bæjarstjórnar 2021 - 2021060010
Tillaga bæjarstjóra um að í stað bæjarstjórnarfundar fimmtudaginn 17. júní 2021, verði næsti fundur bæjarstjórnar fimmtudaginn 24. júní 2021.
Þá leggur bæjarstjóri til við bæjarstjórn að sumarleyfi bæjarstjórnar árið 2021 verði tveir mánuðir og að bæjarstjórn komi næst til fundar að loknu sumarleyfi fyrsta fimmtudaginn í september 2021, þ.e. 2. september 2021. Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála samkvæmt samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

5. Innheimtuþjónusta - 2021050081
Tillaga frá 1155. fundi bæjarráðs, sem fram fór 31. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki samning Ísafjarðarbæjar við Inkasso ehf. / Lög og innheimtu ehf. um innheimtuþjónustu til þriggja ára í samræmi við minnisblað sviðsstjóra og fjármálastjóra.

6. Reglur um endurgreiðslu kostnaðar vegna slysa og tjóna er börn verða fyrir í skipulögðu starfi á vegum Ísafjarðarbæjar - 2021030116
Tillaga frá 1154. fundi bæjarráðs, sem fram fór 25. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki reglur um endurgreiðslu kostnaðar vegna slysa og tjóna er börn verða fyrir í skipulögðu starfi á vegum Ísafjarðarbæjar.

7. Starfshópur vegna nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna - 2021030006
Tillaga frá 1154. fundi bæjarráðs, sem fram fór 25. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki skipan fulltrúa í starfshóp vegna nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, í samræmi við minnisblað Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 15. mars 2021.

8. Samstarf um barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum. - 2017020009
Tillaga frá 1154. fundi bæjarráðs, sem fram fór 25. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 5 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar vegna samstarfs um barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum.

9. Breiðadalur - smávikjun neðan Breiðadalsvirkjunar - 2021010046
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn, heimili auglýsingu á deiliskipulagi um smávirkjun neðan Breiðadalsvirkjunar, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10. Ærslabelgur - Suðureyri - 2021050010
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki staðsetningu á ærslabelg á Suðureyri við íþróttasvæði við enda Túngötu.

11. Hafnarstræti 26, Þingeyri. Umsókn um atvinnuhúsalóð - 2021040026
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki að MMV ehf. fái lóðina við Hafnarstræti 26 á Þingeyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

12. Fjarðargata 42, Þingeyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2021040036
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn heimili gerð lóðarleigusamnings fyrir Fjarðargötu 42 á Þingeyri.

13. Seljalandsdalur, útilistaverk. Lendingarstaður fyrir geimskip - 2020040007
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn heimili gerð samnings um lóð í fóstur fyrir útilistaverkið „Lendingarstaður fyrir geimskip“ við Skíðheima, í samræmi við gögn málsins.

14. Daltunga 8, 400. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2021040072
Tillaga frá 560. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 12. maí 2021, um að bæjarstjórn heimili að Ævar Valgeirsson fái lóðina við Daltungu 8 á Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

15. Brekkustígur 5 - umsókn um lóð - 2018110067
Tillaga frá 561. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. maí 2021, um að bæjarstjórn heimili að Elías Guðmundsson fái lóðina Brekkustíg 5, Suðureyri skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi uppdrættir ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

16. Ártunga 6, Ísafirði. Umsókn um byggingarlóð - 2021050063
Tillaga frá 561. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. maí 2021, um að bæjarstjórn heimili að Þorvaldur Óli Ragnarsson og Anna María Guðjónsdóttir fái lóðina Ártungu 6, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi uppdrættir ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

Fundargerðir til kynningar

17. Bæjarráð - 1154 - 2105018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1154. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 25. maí 2021.
Fundargerðin er í 15 liðum.

18. Bæjarráð - 1155 - 2105025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1155. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 31. maí 2021.
Fundargerðin er í 13 liðum.

19. Fræðslunefnd - 428 - 2105020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 428. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 26. maí 2021.
Fundargerðin er í níu liðum.

20. Hafnarstjórn - 222 - 2105027F
Lögð fram til kynningar fundargerð 222. fundar hafnarstjórnar, sem haldinn var 1. júní 2021.
Fundargerðin er í þremur liðum.

21. Íþrótta- og tómstundanefnd - 223 - 2105014F
Lögð fram til kynningar fundargerð 223. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 19. maí 2021.
Fundargerðin er í þremur liðum.

22. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 560 - 2105004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 560. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 12. maí 2021.
Fundargerðin er í 16 liðum.

23. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 561 - 2105019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 561. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 27. maí 2021.
Fundargerðin er í 17 liðum.

24. Starfshópur um framtíðarskipulag íþróttamannvirkja á Torfnesi - 3 - 2105010F
Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar starfshóps um framtíðarskipulag íþróttamannvirkja á Torfnesi, en fundur var haldinn 25. maí 2021.
Fundargerðin er í einum lið.

25. Velferðarnefnd - 458 - 2105009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar velferðarnefndar, sem haldinn var 20. maí 2021.
Fundargerðin er í átta liðum.