458. fundur bæjarstjórnar

458. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 4. júní 2020 og hefst kl. 17:00.

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá

Almenn mál

1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2019 - 2019110062
Bæjarstjóri leggur fram ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2019, til síðari umræðu.

2. Umsókn um niðurfellingu gatnagerðargjalda - Ártunga 1 - 2018050012
Tillaga frá 1108. fundi bæjarráðs, sem fram fór 2. júní 2020, um að bæjarstjórn samþykki erindi Högna Gunnar Péturssonar, dags. 16. apríl 2020, þar sem óskað er eftir frekari fresti gatnagerðargjalda vegna lokafrágangs við Ártungu 1, Ísafirði.

3. Tungubraut, ósk um deiliskipulagsbreytingu vegna raðhúsalóða - 2020030055
Tillaga frá 538. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 20. maí sl., um að bæjarstjórn heimili breytingu á deiliskipulagi vegna raðhúsalóða við Tungubraut, Ísafirði.

4. Slökkviliðsstöðin á Flateyri, sala og hýsing bifreiðar - 2020020027
Tillaga frá 1108. fundi bæjarráðs, sem fram fór 2. júní 2020, um að bæjarstjórn samþykki kaupsamning og afsal vegna eignarinnar Túngata 7, fnr. 212-6568, á Flateyri, og þjónustusamning milli Ísafjarðarbæjar og Björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri, um hýsingu slökkvibifreiðar og annars búnaðar slökkviliðs, báðir dags. 27. maí 2020.

5. Vestfjarðastofa - ýmis erindi 2020 - 2020040012
Tillaga frá 1108. fundi bæjarráðs, sem fram fór 2. júní 2020, um að bæjarstjórn samþykki tillögu bæjarritara um að taka þátt í markaðsátaki og auglýsingabirtingum fyrir sveitarfélagið í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða.

6. Dagvistarmál í Skutulsfirði 2020 - 2020010058
Tillaga frá 417. fundi fræðslunefndar, sem fram fór 28. maí 2020, um að bæjarstjórn samþykki erindi er varðar sumaropnun fyrir leikskólabörn sumarið 2020.

7. Samstarfshópur um friðlýsingar á Vestfjörðum - 2019100101
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn leggi til að landsvæði í kringum Dynjanda verði friðlýst sem þjóðgarður, og að sú afstaða verði lögð fram á fundi samstarfshóps um friðlýsingar á Vestfjörðum innan marka Vesturbyggðar og Ísafjarðarbæjar.

Fundargerðir til kynningar

8. Bæjarráð - 1108 - 2005021F
Lögð fram fundargerð 1108. fundar bæjarráðs sem haldinn var 2. júní 2020. Fundargerðin er í 20 liðum.

9. Fræðslunefnd - 417 - 2005016F
Lögð er fram fundagerð 417. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 28. maí 2020. Fundargerðin er í þremur liðum.