456. fundur bæjarstjórnar

456. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00.

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá

Almenn mál

1. Verkefnastjóri á Flateyri - nýsköpunar- og þróunarverkefni í kjölfar snjóflóða 2020 - 2020040039
Á 1103. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja samning milli Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðastofu ses., nú dags. 30. apríl nk., um stöðu verkefnisstjóra á Flateyri.

2. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Á 1104. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 6 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2020, en um er að ræða stöðugildi verkefnastjóra á Flateyri og er kostnaður sveitarfélagsins um 3,4 m.kr. Þessum kostnaði er mætt með lækkun á ófyrirséðum kostnaði og lækkun á handbæru fé. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður samantekins A og B hluta Ísafjarðarbæjar er því lækkun afgangs um kr. 2.263.035,- eða úr afgangi kr. 168.000.000,- í kr. 165.736.965. Áhrifin á sveitasjóð A hluta er lækkun afgangs kr. 2.263.035,- eða úr kr. 24.000.000,- í kr. 21.736.965,-

3. Ferðaþjónusta fatlaðra í Ísafjarðarbæ 2020 - 2024 - 2020040011
Á 1104. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð Vestfirskra Ævintýraferða ehf. vegna útboðs á ferðaþjónustu fatlaðra í Skutulsfirði, Ísafjarðarbæ.

4. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Á 1104. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 7 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2020, en um er að ræða útboð á ferðaþjónustu fatlaðra sem leiðir til aukins kostnaðar um 3,6 m.kr. Þessum kostnaði er mætt með lækkun á handbæru fé. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður samantekins A og B hluta Ísafjarðarbæjar er því lækkun afgangs um kr. 3.579.627,- eða úr afgangi kr. 165.736.965,- í kr. 162.157.338,-. Áhrifin á sveitasjóð A hluta er lækkun afgangs kr. 3.579.627,- eða úr kr. 21.736.965,- í kr. 18.157.388,-

Fundargerðir til staðfestingar

5. Bæjarráð - 1103 - 2004018F
Fundargerð 1103. fundar bæjarráðs sem haldinn var 27. apríl sl. lögð fram til staðfestingar. Fundargerðin er í 11 liðum.

6. Bæjarráð - 1104 - 2004021F
Fundargerð 1104. fundar bæjarráðs sem haldinn var 4. maí sl. lögð fram til staðfestingar. Fundargerðin er í 18 liðum.

7. Hafnarstjórn - 211 - 2004013F
Fundargerð 211. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 27. apríl sl. lögð fram til staðfestingar. Fundargerðin er í 10 liðum.

8. Íþrótta- og tómstundanefnd - 207 - 2003011F
Fundargerð 207. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. apríl sl. lögð fram til staðfestingar. Fundargerðin er í 3 liðum.

9. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 96 - 2004017F
Fundargerð 96. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 28. apríl sl. lögð fram til staðfestingar. Fundargerðin er í 6 liðum.