451. fundur bæjarstjórnar

451. fundur bæjarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 6. febrúar n.k. kl. 17:00  í fundarsal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. 

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér

Dagskrá

Almenn mál

1. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2020. Um er að ræða 10 m.kr. aukin kostnað vegna Ísland ljóstengt. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2020.

2. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Lagður fram viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2020. Um er að ræða 1,1 m.kr. aukinn launakostnað í leikskólanum Grænagarði. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2020.

3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2020. Um er að ræða 4,9 m.kr. styrk til björgunarsveita í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík sem og Rauðakrossdeild í þakklætisskyni fyrir björgunarstörf á Flateyri og í Súgandafirði.

4. Byggðakvóti fiskveiðiárið 2019/2020 - 2019090036
Á 1092. fundi bæjarráðs var lagt fram að nýju bréf Jóns Þrándar Stefánssonar og Kristjáns Skarphéðinssonar, dags. 30. desember sl., þar sem sveitarfélögum er m.a. veitt heimild til að óska eftir sérstökum skilyrðum varðandi úthlutun byggðakvóta. 
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar fól bæjarstjóra að vinna að sérstökum skilyrðum varðandi úthlutun byggðakvóta og leggja tillögur fyrir bæjarstjórnarfund. 
Bæjarstjóri leggur til að sérreglur vegna úthlutnar á byggðakvóta 2019/2020 fyrir Ísafjörð, Hnífsdal, Suðureyri og Þingeyri, verði óbreyttar frá fiskveiðiárinu 2018/2019, en að nýttur skuli framlengdur frestur til 21. febrúar n.k. til að skila tillögum að sérreglum fyrir Flateyri vegna sérstakra aðstæðna. . 

5. Endurskoðun á samstarfssamning 2020 - 2019110044
Drög að samstarfsamningi kynntur milli Ísafjarðarbæjar og Héraðssambands Vestfjarðar fyrir árið 2020. 
Samningurinn lagður fram til samþykktar til eins árs með breytingu á 11. grein sem sett verður inn að nýju í samningi fyrir árið 2021. Lagt er til að samningurinn verði endurskoðaður í heild sinni í samstarfi við HSV fyrir árið 2021. 
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar felur bæjarstjóra að gera breytingar á samningnum í samræmi við umræður á fundinum og leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

6. Hjallavegur 2, Suð. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2019110058
Tillaga 533. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 29. janúar s.l. þar sem Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að að heimila endurnýjun lóðaleigusamning vegna fasteignar að Hjallaveg 2, Suðureyri.

7. Eyrargata 4, Suðureyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2019110011
Tillaga 533. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 29. janúar s.l. þar sem Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila endurnýjun lóðaleigusamnings vegna fasteignar að Eyrargötu 4, Suðureyri.

8. Urðarvegur 32. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamning - 2019090072
Tillaga 533. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 29. janúar s.l. þar sem Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila endurnýjun lóðaleigusamnings vegna fasteignar við Urðarveg 32, Ísafirði.

9. Ártunga 2. Umsókn um lóð. - 2018040033
Tillaga 533. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 29. janúar s.l. þar sem Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að EBS ehf. fái lóð við Ártungu 2, skv. núgildandi skipulagi og umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

Fundargerðir til kynningar

10. Bæjarráð - 1091 - 2001016F 
Lögð er fram fundargerð 1091. fundar bæjarráðs frá 27. janúar 2020. Fundargerðin er í 11 liðum.

11. Bæjarráð - 1092 - 2001022F 
Lögð er fram fundargerð 1092. fundar bæjarráðs frá 31. janúar 2020. Fundargerðin er í 18 liðum.

12. Fræðslunefnd - 412 - 1912012F 
Lögð er fram fundargerð 412. fundar fræðslunefndar frá 23. janúar 2020. Fundargerðin er í 4 liðum.

13. Hafnarstjórn - 209 - 2001014F 
Lögð er fram fundargerð 209. fundar hafnarstjórnar frá 23. janúar 2020. Fundargerðin er í 8 liðum.

14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 204 - 2001005F 
Lögð er fram fundargerð 204. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 29. janúar 2020. Fundargerðin er í 3 liðum.

15. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 533 - 2001012F 
Lögð er fram fundargerð 533. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 29. janúar 2020. Fundargerðin er í 9 liðum.

16. Starfshópur um skipulag útivistarsvæða í Tungudal og Seljalandsdal - 3 - 1912008F 
Lögð er fram fundargerð 3. fundar starfshóps um skipulag útivistarsvæða í Tungudal og Seljalandsdal frá 13. janúar 2020. Fundargerðin er í 3 liðum.

17. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 92 - 1912022F 
Lögð er fram fundargerð 92. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar frá 28. janúar 2020. Fundargerðin er í 5 liðum.