Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Skóladagatal leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026040073
Lagt fram að beiðni leikskólastjórnenda, bréf frá leikskólastjórum í Ísafjarðarbæ til Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndarinnar dagsett 6. maí 2026. Erindið sem áður var tekið fyrir á 43. fundi nefndarinnar þann 12. maí sl. varðar athugasemdir vegna skóladagatala sem leikskólarnir settu inn í vor.
Svava Rán yfirgaf fundinn kl.08:45.
Gestir
- Svava Rán Valgeirsdóttir, leikskólastjóri - mæting: 08:15
2.Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar - endurskoðun - 2025110140
Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur sviðstjóra skóla- og tómstundasviðs dags. 4. nóvember 2024, einnig er lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 9. janúar 2025 með niðurstöðum úr könnun vegna íþróttaskólans sem fór fram haustið 2024.
Minnis blað Dagnýjar Finnbjörnsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 25. júní 2026 um stöðu endurskoðun íþróttaskólans er einnig lagt fram.
Minnis blað Dagnýjar Finnbjörnsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 25. júní 2026 um stöðu endurskoðun íþróttaskólans er einnig lagt fram.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að undirbúa fræðsluþing með íþróttahreyfingunni og foreldrum til að ræða framtíð íþróttaskólans og fyrirkomulag íþróttaiðkunar barna í 1.-4. bekk grunnskóla.
3.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Lögð fram drög að úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum fyrir veturinn 2026-2027 ásamt tölvupósti frá Héraðssambandi Vestfirðinga með bókun frá fundi þeirra sem haldinn var 24. júní 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að senda drög að tímatöflu í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar til íþróttafélaganna og kalla eftir skriflegum umsögnum varðandi hana. Síðasti dagur til að skila inn umsögnum verður 7. júlí 2026.
4.Staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026060123
Málið var tekið fyrir á 44. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og var þá starfsmönnum falið að vinna málið áfram. Málið er nú tekið upp að nýju og er lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 29. júní 2026 varðandi stöðuna á leikskólamálum á Ísafirði.
Afgreiðslu málsins er frestað til ágúst 2026. Nefndin kallar eftir ítarlegum gögn og útreikningum á mismunandi sviðsmyndum. Markmiðið er að skapa traustan grundvöll fyrir ákvörðun um markvissar mótvægisaðgerðir til að vinna gegn manneklu í leikskólum og snúa þeirri þróun við.
5.Ungmennaráð sveitarfélaga - 2025100070
Lagt fram minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett 22. apríl 2026, ásamt drögum að samþykkt fyrir ungmennaráð Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd frestar málinu til næsta fundar.
6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt dags. 10. júní 2026, þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 99/2026, Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla.
Umsagnarfrestur er til og með 08. júlí 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 08. júlí 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fagnar að umrædd drög séu komin fram enda mikilvægt að stemma stigu við símanotkun barna og ungmenna í grunnskólum. Nefndin felur starfsmönnum að vinna umsögn og skila inn í samráðsgátt fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Ljóst er að endurskoða þarf viðmið um skráningar- og lokunardaga í leikskólum með það að markmiðið að skýra þau betur.
Fulltrúar Framsóknar og óháðra, Viðreisnar og Samfylkingar samþykkja framlögð skóladagatöl leikskóla í Ísafjarðarbæ. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks Ásgerður Þorleifsdóttir situr hjá og leggur fram eftirfarandi bókun: "Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að við ákvörðun um lokunar- og skráningardaga í leikskólum Ísafjarðarbæjar þurfi að horfa til margra sjónarmiða og gæta jafnvægis milli þarfa barna, starfsfólks leikskóla og foreldra barna.
Við sýnum því fullan skilning að starfsumhverfi leikskóla er krefjandi og að stjórnendur og starfsfólk þurfi aukið svigrúm til undirbúnings, vinnustyttingar og orlofs. Það er mikilvægt að sveitarfélagið hlusti á þær ábendingar sem koma frá leikskólastiginu og leiti leiða til að bæta starfsumhverfi og gera skipulag leikskólastarfsins fyrirsjáanlegra og var það tilgangur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Ísafjarðarbæ sem vann mikla og góða vinnu.
Á sama tíma teljum við mikilvægt að ekki verði gengið of langt í föstum lokunum án þess að foreldrar hafi raunhæft val. Aðstæður fjölskyldna og barna eru ólíkar og þá þarf einnig að hafa í huga það starfsfólk leikskóla sem á ekki inni frí og þarf að taka launalaust leyfi ef lokunardagar ná yfir marga daga. Starfshópurinn lagði fram tillögur sem samþykktar voru í bæjarstjórn. Þar er sérstaklega fjallað um að skráningardagar skuli vera einn til fjórir dagar í kringum jól og áramót. Við teljum því ljóst að samþykkt bæjarstjórnar geri ráð fyrir að boðið verði upp á skráningardaga milli hátíða, enda væri annars um lokunardaga að ræða en ekki skráningardaga.
Við teljum mikilvægt að unnið sé samkvæmt samþykktum reglum og að útfærsla á skóladagatali taki mið af ólíkum aðstæðum fjölskyldna, þörfum leikskólastarfsins og góðu samtali við foreldra og starfsfólk. Markmiðið á að vera að bæta starfsumhverfi leikskóla, tryggja betri fyrirsjáanleika og leita leiða sem skerða þjónustu ekki meira en þörf krefur.
Þá ítrekar Sjálfstæðisflokkurinn afstöðu sína í því að skoða það að veita gjaldrjálsan leikskóla frá kl 8-14 í þeim tilgangi að bæta starfsumhverfi leikskóla. Reynslan hefur sýnt að það hefur bætt starfsumhverfi til muna, starfsánægja hefur aukist, álag minnkað og börn eru ekki send heim vegna manneklu."