Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar samráðs mál nr. 94/2026 frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu "Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla". Umsagnarfrestur er til og með 15. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
2.Staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026060123
Kynnt minnisblað Guðrúnar Birgis dagsett 15. júní 2026 er varðar stöðu mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2026-2027
Nefndin þakkar fyrir gott og upplýsandi minnisblað, nefndin leggur til mótvægisaðgerðir sem koma fram í minnisblaðinu með smávægilegum breytingum:
Að starfsmenn upplýsi foreldra leikskólabarna á Ísafirði um núverandi stöðu,
viðbragðsáætlun og mögulegar sviðsmyndir miðað við mönnun leikskóla.
Að innleiddir verði tímabundnir ráðningahvatar til að stuðla að öruggari mönnun, ekki er verið að búa til fordæmi heldur reyna að koma til móts við mikla manneklu sem nú er.
Að starfsmenn undirbúi frestun á inntöku nýrra barna komi til þess að ekki náist að manna stöður fyrir haustið. Ljóst er að mönnun ræður úrslitum um þjónustustig leikskólanna.
Að höfðað verði til foreldra að nýta skráningardaga aðeins í nauðsyn til að draga úr álagi á meðan mönnunarvandi er til staðar.
Einnig felur nefndin starfsmanni að reikna út mismunandi sviðsmyndir á hvötum miðað við umræður á fundinum fyrir næsta fund.
Að starfsmenn upplýsi foreldra leikskólabarna á Ísafirði um núverandi stöðu,
viðbragðsáætlun og mögulegar sviðsmyndir miðað við mönnun leikskóla.
Að innleiddir verði tímabundnir ráðningahvatar til að stuðla að öruggari mönnun, ekki er verið að búa til fordæmi heldur reyna að koma til móts við mikla manneklu sem nú er.
Að starfsmenn undirbúi frestun á inntöku nýrra barna komi til þess að ekki náist að manna stöður fyrir haustið. Ljóst er að mönnun ræður úrslitum um þjónustustig leikskólanna.
Að höfðað verði til foreldra að nýta skráningardaga aðeins í nauðsyn til að draga úr álagi á meðan mönnunarvandi er til staðar.
Einnig felur nefndin starfsmanni að reikna út mismunandi sviðsmyndir á hvötum miðað við umræður á fundinum fyrir næsta fund.
3.Skóladagatal leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026040073
Lagt fram skóladagatal leikskólans Grænagarðs á Flateyri fyrir skólaárið 2026-2027. Þar sem óskað er eftir fjórum skráningardögum í lok skólaárs 2027 til að rétta af sumarlokun 2027-2028, svo 204 kennsludagar standist.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd gerir ekki athugasemdir við á skóladagatal leikskólans.
4.Skólamatur í Grunnskóla Önundarfjarðar - 2026050006
Á 43. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar þann 12. maí 2026 var málið tekið fyrir og fól þá nefndin starfsmönnum að taka saman frekari gögn og leggja fyrir nýja nefnd. Mál er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 16. júní 2026 um stöðu á skólamat á Flateyri.
Nefndin þakkar fyrir minnisblaðið og leggur til að fara báðar leiðir sem koma fram í minnisblaðinu með smávægilegum breytingum.
Farið verður í tímabundið milliskref með tímabundnum samningi, miðað við umræður á fundinum.
Einnig óskar nefndin eftir að hafinn verði undirbúningur að útboði á skólamáltíðum á Flateyri.
Farið verður í tímabundið milliskref með tímabundnum samningi, miðað við umræður á fundinum.
Einnig óskar nefndin eftir að hafinn verði undirbúningur að útboði á skólamáltíðum á Flateyri.
5.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Lögð eru fram drög að úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum fyrir veturinn 2026-2027 sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar óskaði eftir á 42. fundi sem haldinn var 29. apríl 2026.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd felur starfsmanni að leggja drögin fyrir stjórn HSV og koma með minnisblað um málið á næsta fund.
6.Aðstaða og aðgengi að skotsvæði á Dagverðardal - 2026060080
Lagt fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Skotíþróttafélags Ísafjarðar dagsett 4. júní 2026. er varðar utandyra-aðstöðu félagsins fyrir riffil- og haglabyssuskotfimi og óskað eftir liðsinni bæjarins við að finna farsæla lausn til framtíðar.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd vísar málinu til umhverfis- og framkvæmdarnefndar. Þar sem um ræðir veg upp á útivistarsvæði í Dagverðardal, en nefndin tekur vel í erindið og leggur áherslu á að finna jákvæða lausn til framtíðar.
7.Uppbygging akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal - 2026060030
Lagt fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Akstursíþróttadeildar Vestra dagsett 3. júní 2026. Erindið varðar uppbyggingu akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd óskar eftir að fá frekari kynningu frá Akstursíþróttadeild Vestra inn á næsta fundi.
8.Uppbygging reiðhjólaleiða á Seljalandsdal - 2026060029
Lagt fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Reiðhjóladeildar Vestra dagsett 3. júní 2026. varðar leyfisveitingu til jarðrasks vegna brautargerðar til íþróttaiðkunar í og við Seljalandsdal við Skutulsfjörð.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd vísar málinu áfram til umhverfis- og framkvæmdarnefndar til ákvörðunartöku, þar sem um leyfisveitingu um jarðrask í Tungudal er að ræða. Nefndin tekur jákvætt í erindið.
9.Auglýsingaskjáir í íþróttamannvirki, skjálausnir - 2026020222
Lagt fram minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 11. júní 2026 um fyrirkomulag auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd felur Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram.
10.Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar - endurskoðun - 2025110140
Lögð fram fyrirspurn Ásgerðar Þorleifsdóttur, fulltrúa D lista Sjálfstæðisflokksins í skóla- íþrótta og tómstundanefnd dagsett 16. júní 2026. Þar er óskað eftir upplýsingum um stöðu á málefnum Íþróttaskólans og hver stefnan er meðal nýrrar nefndar og nýs meirihluta í þeim málum.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd þakkar Ásgerði Þorleifsdóttur fulltrúa D lista fyrir erindið og óskar eftir að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynni þá vinnu sem farið hefur fram á næsta fundi nefndarinnar.
11.Frístundakista - 2026060132
Lagt fram erindi frá Ásgerði Þorleifsdóttur fulltrúa D lista í skóla- íþrótta og tómstundanefnd, dagsett 16. júní 2026. Þar sem hún leggur til að Ísafjarðarbær standi fyrir einskiptis kynningarviðburði í upphafi skólaárs þar sem íþróttafélög, list- og tómstundastarf, æskulýðsstarf og önnur skipulögð frístund fyrir börn og ungmenni fá tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir komandi vetri.
Skóla- íþrótta og tómstundanefnd þakkar Ásgerði Þorleifsdóttur fulltrúa D lista fyrir erindið og óskar eftir að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi vinni málið áfram miðað við umræður á fundinum.
Fundi slitið - kl. 10:38.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?