Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Formaður lagði til að mál nr. 2026050006, skólamatur í Grunnskóla Önundarfjarðar, verði tekið inn með afbrigðum. Samþykkt af öllum nefndarmönnum.
1.Skóladagatal leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026040073
Lögð fram ný skóladagatöl leikskóla í Ísafjarðarbæ fyrir skólaárið 2026-2027.
Jafnframt er lagt fram bréf til Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndarinnar frá leikskólastjórum í Ísafjarðarbæ dagsett 6. maí 2026. Varðandi athugasemdir frá nefndinni, vegna skóladagatala sem leikskólarnir settu inn í vor.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar leikskólastjórum kærlega fyrir gott og uppbyggilegt samtal um málefni leikskólanna og tekur undir áhyggjur þeirra varðandi mönnun leikskólanna.
Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að fyrirkomulag lokunar- og skráningardaga taki mið af þörfum barna og fjölskyldna þeirra sem og starfsfólks leikskólanna. Niðurnjörvaðar reglur um lokunar- og skráningadaga geta verið heftandi fyrir leikskólana. Nefndin hvetur þá kjörnu fulltrúa sem taka við skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að loknum sveitarstjórnarkosningum til að endurskoða gildandi reglur um lokunar- og skráningardaga með það að markmiði að ná sem bestu jafnvægi milli þjónustu við fjölskyldur og góðra starfsaðstæðna starfsfólks.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir framlögð skóladagatöl leikskólanna fyrir skólaárið 2026-2027.

Fundargestir yfirgáfu fundinn kl.09:30.
Gestir
- Svava Rán Valgeirsdóttir, leikskólastjóri - mæting: 08:15
- Ingibjörg Einarsdóttir, leikskólastjóri - mæting: 08:15
2.Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025010085
Lögð fram fyrstu drög að endurskoðaðri menntastefnu Ísafjarðarbæjar dags. 26. apríl 2026, unnin af Sverri Óskarssyni verkefnastjóra.
Nefndin þakkar fyrir góða og heildstæða vinnu við endurskoðun stefnunnar sem byggir á víðtæku samráði við íbúa, nemendur, foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla.
Nefndin samþykkir að setja drög menntastefnunnar í opið samráðsferli með það að markmiði að kalla eftir frekari sjónarmiðum frá íbúum og hagaðilum áður en hún verður tekin til endanlegrar afgreiðslu.
Nefndin samþykkir að setja drög menntastefnunnar í opið samráðsferli með það að markmiði að kalla eftir frekari sjónarmiðum frá íbúum og hagaðilum áður en hún verður tekin til endanlegrar afgreiðslu.
3.Íþróttamannvirki - einstök erindi 2026 - 2026050055
Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 8. maí 2026 varðandi árskortshafa í sundlaugar Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd telur að ekki séu forsendur til að verða við erindinu. Skv. notendaskilmálum árskorta í Ísafjarðarbæ er ekki hægt að óska eftir endurgreiðslu eða afslátt ef til lokunar kemur vegna annarra óviðráðanlegra ástæðna/atvika.
4.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Lagður fram tölvupóstur frá Ívari Péturssyni, starfsmanni knattspyrnudeildar Vestra, dags. 7. maí 2026 varðandi óskir um tíma í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar veturinn 2026-2027.
Óskir knattaspyrnudeildar Vestra um tímaúthlutun í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar vísað til vinnu við gerð á tímatöflu.
5.Skólamatur í Grunnskóla Önundarfjarðar - 2026050006
Mál tekið inn með afbrigðum.
Lagt fram erindi foreldrafélags Grunnskóla Önundarfjarðar dags. 29. apríl 2026 varðandi skólamáltíðir á Flateyri. Er þar lagt til að skólamaturinn verði boðinn út.
Jafnframt er lagt fyrir minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 11. maí 2026 varðandi fyrirkomulag skólamáltíða á Flateyri.

Nefndin þakkar foreldrafélaginu fyrir ábendingar og ábendingar um málefnið, sem og leik- og grunnskólastjórum og matráð fyrir viðbrögð og þær úrbætur sem þegar hefur verið ráðist í.
Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að skólamáltíðir séu næringarríkar, vandaðar og stuðli að vellíðan barna, auk þess sem traust foreldra til þjónustunnar sé tryggt.
Með hliðsjón af framkomnum sjónarmiðum, kröfum um jafnræði og regluverki um opinber innkaup, telur nefndin rétt að skoða kosti þess að þjónustan verði boðin út. Felur hún starfsmönnum að taka gögn þess efnis saman og leggja fyrir nýja nefnd.

Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?