Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
41. fundur 08. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir varaformaður
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
  • Eyþór Bjarnason aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Dagný Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
  • Guðrún Birgis skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025030036

Máli vísað til umsagnar frá velferðarnefnd. Lögð fram frumdrög að forvarnarstefnu Ísafjarðarbæjar.
Nefndin ræddi frumdrög að forvarnarstefnu Ísafjarðarbæjar. Almenn ánægja var með framsetningu stefnunnar, heildarsýn og þá áherslu sem lögð er á forvarnir á öllum æviskeiðum. Þegar kemur að skóla-, íþrótta- og tómstundamálum eru foreldrar lykilaðilar í forvarnarmálum.

Nefndin felur starfsmanni að taka saman þær ábendingar sem fram komu í umræðum fundarins og koma þeim á framfæri við velferðarnefnd til frekari úrvinnslu í áframhaldandi stefnumótun.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?