Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
37. fundur 21. janúar 2026 kl. 08:15 - 09:33 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir varaformaður
  • Magnús Einar Magnússon varamaður
    Aðalmaður: Þórir Guðmundsson
  • Eyþór Bjarnason aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Dagný Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
  • Guðrún Birgis skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.leikskólinn Tangi - fáliðun haust 2025 - 2025110092

Lagt fram erindi föður leikskólabarns á Tanga dags. 9. janúar 2026 um niðurfellingu á leikskólagjöldum.
Með vísan til reglna um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar er heimilt að fella niður fæðisgjöld ef barn dvelur ekki í leikskóla til lengri tíma. Nefndin samþykkir að fella niður fæðisgjöld. Ekki er hægt að verða við beiðni um að fella niður dvalargjöld í leikskóla þar sem reglurnar heimila það ekki.
Starfsmanni falið að svara bréfritara.

2.Endurskoðaðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar - 2026010247

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 19. janúar 2026 varðandi tillögur að breytingum á reglum um umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar. Jafnframt eru lagðar fram núgildandi reglur með tillögum að breytingum.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmanni að hreinrita reglurnar og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

3.Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar - endurskoðun - 2025110140

Á 17. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var þann 15. janúar 2025 voru lagðar fram athugasemdir foreldra barna í 1.-4. bekk grunnskóla í Ísafjarðarbæ en kallað var eftir þeim með tölvupósti í desember 2024. Einnig voru lagðar fram athugasemdir frá íþróttafélögum í Ísafjarðarbæ varðandi íþróttaskólann. Nefndin fól starfsmönnum að flokka athugasemdirnar og leggja fyrir nefndina að nýju ásamt tillögu að tímasettri aðgerðaáætlun.

Eru nú lögð fram drög að aðgerðaáætlun varðandi endurskoðun íþróttaskóla Ísafjarðarbæjar.
Mikil umræða hefur verið um íþróttaskólann síðan Ísafjarðarbær tók við honum af HSV 2023. Sveitarfélagið sendi út könnun til foreldra árið 2024 þar sem niðurstöður voru að meirihluti foreldra telja starf íþróttaskólans gott eða mjög gott og ýta undir aukna hreyfingu barna.

Stjórn HSV gerði athugasemdir við starf íþróttaskólans í nóvember 2025 og kallar eftir endurskoðun á starfsemi hans.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hyggst boða stjórn HSV til fundar til að ræða þeirra hugmyndir um framtíð íþróttaskólans. Mikilvægt er að heyra í þeim hagaðilum sem nota íþróttaskólann og aðstandendum þeirra. Nefndin leggur til að send verði út ný könnun til foreldra barna í íþróttaskólanum um mögulegar leiðir til að styrkja íþróttastarf barna í 1.-4. bekk.

4.Sundhöll - Úttekt slökkviliðs Ísafjarðarbæjar - 2026010030

Lögð fram úttekt slökkviliðs Ísafjarðarbæjar á Sundhöllinni, íþróttasal Austurvegi og dægradvöl sem framkvæmd var 22. desember 2025. Einnig lagt fyrir minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 19. janúar 2026 varðandi stöðuna á starfsemi í húsnæðinu.
Máli frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 09:33.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?