Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
22. fundur 07. maí 2025 kl. 08:10 - 10:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Jónína Eyja Þórðardóttir varamaður
    Aðalmaður: Þórir Guðmundsson
  • Eyþór Bjarnason aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Skóladagatal leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2025-2026 - 2025040140

Lögð fram skóladagatöl fyrir leikskólana Eyrarskjól á Ísafirði, Tanga á Ísafirði, Sólborg á Ísafirði, Tjarnarbæ á Suðureyri, Grænagarð Flateyri og Laufás á Þingeyri fyrir skólaárið 2025-2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatöl leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2025-2026. Nefndin leggur áherslu á að skráningardagar eru venjulegir leikskóladagar þar sem leikskólabörn eru ávallt velkomin. Eini munurinn á þeim og öðrum leikskóladögum er að foreldrar þurfa láta vita hvort þeir hyggist nýta þá. Leikskólagjöldin hafa verið lækkuð sem nemur þessum dögum. Lokunardagar eru í samræmi tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar.

Gestir

  • Jóna Lind Kristjánsdóttir, leikskólastjóri Tanga

2.Skólanámskrá Sólborgar 2025 - 2025040162

Lögð fram til kynningar nýendurskoðuð námskrá fyrir leikskólann Sólborg.
Lagt fram til kynningar.
Jóna Lind Kristjánsdóttir yfirgaf fundinn kl.09:00

3.Gjaldskrár skólaárið 2025-2026 - 2025030220

Gjaldskrár fyrir leikskóla, dagforeldra, dægradvöl og íþróttaskóla lagðar fram til umræðu.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gjaldskrá fyrir skólamat verði breytt á þann veg að þar standi "Í öllum grunnskólum Ísafjarðarbæjar er boðið upp á hressingu á morgnanna og hádegismat, án endurgjalds." Einnig leggur hún til að tímagjald leikskóla og máltíðir hækki um 4% en leggur jafnframt áherslu á að rukkað er fyrir 204 skóladaga. Áfram er greitt sérstaklega fyrir skráningardaga.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar gjaldskrám leikskóla, dagforeldra, dægradvalar og íþróttaskóla fyrir skólaárið 2025-2026 til bæjarstjórnar til samþykktar.
Edda María vék af fundi kl.09:30.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 09:00

4.Endurskoðaðir samningar við skólasálfræðinga - 2025 - 2025040195

Lagðir fram endurnýjaðir samningar Ísafjarðarbæjar við skólasálfræðingana Sólveigu Norðfjörð og Björgu Norðfjörð en núgildandi samningar renna út 15. júní 2025.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar samningum Ísafjarðarbæjar við skólasálfræðinga til bæjarstjórnar til samþykktar.

5.Endurskoðaður samstarfssamningur 2025 - 2025040175

Lagður fram samningur Ísafjarðarbæjar og Rannsókna og greiningar ehf. varðandi fyrirlögn á rannsókn á hegðun og líðan ungmenna í Ísafjarðarbæ. Einnig er lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 23. apríl 2025.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar samningi Ísafjarðarbæjar við Rannsóknir og greiningu ehf. til bæjarstjórnar til samþykktar.

6.Beiðni um gjaldfrjálsa tíma í íþróttamiðstöð Flateyri - 2025030091

Lagt fram erindi frá Margréti Gauju Magnúsdóttur, skólastjóra Lýðskólans á Flateyri, dags. 11. mars 2025 varðandi gjaldfrjáls afnot íþróttamannvirkisins á Flateyri og afslátt af sundkortum fyrir nemendur skólans. Jafnframt lagt fyrir minnisblað Guðrúnar Birgis, skóla- og sérkennslufulltrúa Ísafjarðarbæjar dags. 11. mars 2025.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur vel í að Lýðskólinn fá 2 tíma gjaldfrjálsa í íþróttasal á Flateyri en telur að nemendur skólans eigi að borga sundkort skv. gjaldskrá eins og önnur ungmenni í sveitarfélaginu. Erindinu vísað til bæjarstjórnar.

7.Úthlutun tíma í þróttamannvirkjum 2025 - 2025040047

Lögð fram drög að nýjum úthlutunarreglum um styrkveitingu og úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum og íþróttasvæðum til íþróttafélaga og almennings.
Málinu frestað til næsta fundar.

8.Skóladagatal grunnskóla Ísafjarðarbæjar 2025-2026 - 2025020001

Lögð fram skóladagatöl Grunnskólans á Ísafirði, Grunnskólans á Suðureyri og Grunnskóla Önundarfjarðar fyrir skólaárið 2025-2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatöl grunnskóla Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2025-2026.

9.Endurskoðun verkefnasamninga 2025 - 2025040086

Lagður fram núgildandi verkefnasamningur Héraðssambands Vestfirðinga og Ísafjarðarbæjar ásamt minnisblaði Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 2. maí 2025 varðandi endurskoðun á samningnum.
Máli frestað til næsta fundar.

10.Úthlutun tíma í þróttamannvirkjum 2025 - 2025040047

Lagðar fram umsóknir íþróttafélaga sem óska eftir tímum sumarið 2025 í íþróttahúsinu á Torfnesi ásamt óútfylltri æfingatöflu. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd raðar niður tímum með úthlutunarreglur til hliðsjónar.
Þar sem nýjar úthlutunarreglur fyrir tíma í íþróttamannvirkjum hafa ekki enn verið samþykktar leggur nefndin til að sumarúthlutun í íþróttahúsinu á Torfnesi skiptist jafnt niður á þau tvö íþróttafélög sem sóttu um og skal það gert í samvinnu við forstöðumann.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?