Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
461. fundur 17. september 2020 kl. 17:00 - 18:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Andri Guðjónsson varamaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Hafdís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson forseti
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Birgir Gunnarsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskar eftir að eitt mál verði tekið á dagskrá bæjarstjórnar með afbrigðum, þ.e. tillaga um að samþykkja hækkun yfirdráttarheimildar á veltureikningi sveitarfélagsins.

Forseti leggur fram tillöguna til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

1.Hækkun yfirdráttarheimildar á veltureikningi, allt að kr. 400.000.000 - 2020090054

Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki hækkun yfirdráttarheimildar á veltureikningi sveitarfélagsins um allt að kr. 200.000.000, til 31. október 2020, þannig að hún verði allt að kr. 400.000.000.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Birgir Gunnarsson, Daníel Jakobsson og Sigurður J. Hreinsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Endurskoðun innkaupareglna Ísafjarðarbæjar - 2017050075

Tillaga frá 1120. fundi bæjarráðs, sem fram fór 7. september 2020, um að bæjarstjórn samþykki innkaupareglur og innkaupastefnu Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Tölvumál Ísafjarðarbæjar - 2017020127

Tillaga frá 1120. fundi bæjarráðs, sem fram fór 7. september 2020, um að bæjarstjórn samþykki kaup á tölvubúnaði fyrir sveitarfélagið, í samræmi við minnisblað innkaupa- og tæknistjóra. Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 12 við fjárhagsáætlun 2020.

Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, og Kristján Andri Guðjónsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Snjómokstur Ísafirði og Hnífsdal, útboð. - 2019100083

Tillaga frá 1120. fundi bæjarráðs, sem fram fór 7. september 2020, um að bæjarstjórn samþykki tilboð í snjómokstur, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Kristján Andri Guðjónsson, Sigurður Jón Hreinsson, Daníel Jakobsson, Jónas Þór Birgisson, Þórir Guðmundsson, og Arna Lára Jónsdóttir.

Sigurður Jón Hreinsson leggur fram breytingatillögu um frestun máls þar til á næsta bæjarstjórnarfundi.

Forseti ber breytingatillöguna upp til atkvæða.

Breytingatillagan samþykkt 8-0.

Kristján Andri Guðjónsson situr hjá við atkvæðagreiðslu.

5.Líkamsrækt á Ísafirði - 2017050073

Tillaga frá 1120. fundi bæjarráðs, sem fram fór 7. september 2020, um að bæjarstjórn samþykki samning milli Ísafjarðarbæjar og Ísófit ehf. um styrk vegna reksturs líkamsræktarmiðstöðvar.

Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Daníel Jakobsson, Þórir Guðmundsson, Birgir Gunnarsson, Hafdís Gunnarsdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson, Jónas Þór Birgisson, Sigurður J. Hreinsson og Kristján Andri Guðjónsson.

Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-lista, leggur fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa Í-lista:

„Það er margt athugunarvert við málsmeðferð og aðdraganda þessa samnings sem hér liggur til samþykktar. Stefnuleysið er varðar aðkomu og uppbyggingu líkamsræktaraðstöðu er upphafið af þessu stjórnsýsluklúðri.
Hér er tæpt á nokkrum atriðum.
Það er ekki búið að svara erindi frá Þrúðheimum frá 24.ágúst þar sem þau óska eftir gögnum málsins þar sem þau telja að margt sé ámælisvert við málsmeðferðina og ákvarðatöku. Hvers konar stjórnsýsla er það sem svarar ekki erindum frá íbúum sínum og samstarfsfélögum? Ásakanirnar hverfa ekki með þöggun heldur ýta þær undir enn meiri tortryggni.
Þrúðheimar, í samráði við sína lögfræðinga, telja að það liggi rökstuddur grunur um að ekki hafi verið gætt að stjórnsýslulögum nr.37/1993 við meðferð málsins og nefna sérstaklega ákvæði 10., 11., 13. og 15. gr. laganna. Fulltrúar Í-listans bókuðu vegna þessa á bæjarstjórnarfundi þann 3.september sl. í þeirri von að meirihlutinn og bæjarstjóri myndu svara erindinu og fara yfir þau atriði sem gerðar voru athugasemdir við. Það var ekki gert.
Þrúðheimar bíða enn eftir svörum, þau hafa engar upplýsingar um hvenær eða hvernig þau eiga að skila af sér, þ.e. afhenda tækjakostinn og þar með loka dyrunum að sínu fyrirtæki. Í aðsendri grein Baldvinu Karenar Gísladóttur sem birtist á bb.is þann 12.sept sl.segir að þau hafi upplifað þögn, þöggun og almenna hunsun í samskiptum við bæinn og telja að vinnubrögðin séu ekki boðleg og fara fram á bærinn stundi vandaða stjórnsýsluhætti. Bæjarfulltrúar Í-listans taka undir þá réttmætu kröfu.
Það hefur almennt gengið nokkuð illa fá gögn og svör vegna málsins. Það á við bæjarfulltrúa Í-listans, Þrúðaheima og Ísófit. Bæjarstjóri/bæjarritari hafa haldið því fram að gögn varðandi hugmyndir Ísófit hafi verið send bæjarfulltrúum í tölvupósti, það er rangt. Bæjarfulltrúar Í-listans fengu ekki þau gögn fyrr en 10.september sl. eftir að hafa ítrekað óskað eftir þeim en þá var samningur við Ísófit búin að vera tvisvar til umræðu í bæjarráði.
Fyrir fund bæjarráðs þann 17. ágúst höfðu fulltrúar Í-listans aðeins fengið að sjá fyrstu tillögur frá báðum aðilum sem var hafnað með tölvupósti frá bæjarstjóra þann 8. júní sl. Í þeim tillögum var aðeins annar aðili, Þrúðheimar, sem sendi inn fullmótaðar tillögur með kostnaðartölum þar sem m.a. koma fram kostnaður við aðkomu sveitarfélagsins við standsetningu húsnæðis, mánaðarlegur rekstrarstyrkur frá sveitarfélaginu og á móti greiðsla rekstraraðila til sveitarfélagsins vegna leigu á tækjum í eigu sveitarfélagsins.
Hugmyndir Ísófit sem nú stendur til að semja við varðandi rekstur og tækjabúnað líkamsræktarstöð voru aðeins kynntar meirihluta bæjarstjórnar eða fulltrúum þeirra á lokuðum fundum og svo í tölvupóstum til sviðstjóra og bæjarstjóra. Þar koma fram hugmyndir að húsnæði sem aðili getur hugsað sér að vera í til skamms tíma, hugmyndir að rekstrarstyrk og notkun tækja. Þessar hugmyndir voru aldrei lagðar fyrir bæjarráð né komu fulltrúar þess félags fyrir bæjarráð til að kynna sínar hugmyndir eftir að bæjarstjóri sendir út póst til beggja aðila þann 8. júní.
Samningur við Ísófit var lækkaður um 20.000 á milli funda og leiða má af því líkur af það hafi verið gert til að komast hjá því að þurfa að fara með verkið í útboð í samræmi við innkaupalegur sveitarfélagsins. Það er ámælisvert.
Í fyrirliggjandi samningi við Ísófit eru ekki gerðar neinar kröfur um opnunaríma, viðveru starfsmanna o.s.frv. Ætla forsvarsmenn bæjarins að leggja til 420 þúsund krónur á mánuði til næstu þriggja ára án þess að gera meiri kröfur til rekstraraðila? Almennur opnunartími, eins og það er orðað í samningnum bíður upp á margskonar túlkanir. Er opið um helgar, verður opið frá kl.6-22 eins og nú er gert?
Það kemur fram í þeim gögnum sem bæjarfulltrúar Í-listans fengu send 10.sept. að það hefur líka gengið illa hjá Ísófit að fá svör frá forsvarsmönnum bæjarins og nefna þau í tölvupósti til bæjarstjóra þann 29.júní að þau hafi beðið eftir svörum í mánuð, og að tveimur erindum sem þau höfðu sent bænum hafi aldrei verið svarað!
Í minnisblaði sviðstjóra íþrótta og tómstundasviðs þann 11.ágúst sl.kemur fram að hugmyndir Ísófit falli betur að hugmyndum Ísafjarðarbæjar. Það er athyglisvert þar sem umræða um hverjar hugmyndir Ísafjarðarbæjar hefur ekki farið fram nema þá einhverjum lokuðum fundum án fulltrúa Í-listans?
Algjört stefnuleysi hefur einkennt framkvæmd og gjörðir meirhlutans í þessum máli. Á rúmum mánuði hefur meirihlutinn eða formaður bæjarráðs skipt þrisvar um skoðun um hvernig þessum málum ætti að vera fyrirkomið. Einn bæjarráðsfundinn átti að framlengja í Hafnarstræti og byggja upp á Torfnesi, á þeim næsta átti að fara í útboð og á þriðja fundinum lá fyrir samningurinn við Ísófit.“

Hafdís Gunnarsdóttir, varaforseti, tekur við stjórn fundarins kl. 18.06 meðan Kristján Þór tók til máls. Kristján tók aftur við stjórn fundarins kl. 18.08.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 5-3.
Kristján Andri Guðjónsson situr hjá við atkvæðagreiðslu.

6.Deiliskipulag í Dagverðardal - 2008060063

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili skipulagsvinnu.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Hafnarbakki 8, endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2020080024

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Hafnarbakka 8.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Grundarstígur 16, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2020080004

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Grundarstíg 16 á Flateyri.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Grundarstígur 22, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2020080035

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Grundarstíg 22 á Flateyri.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Sætún 9, umsókn um lóðarleigusamning - 2020080055

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Sætún 9.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Sætún 5, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2020090016

Tillaga frá 543. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. september 2020, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Sætún 5, Ísafirði.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Bæjarstjórnarfundir 2020 - 2020060061

Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, bæjarritara, dags. 15. september 2020, um bæjarstjórnarfundi 2020-2021.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Bæjarráð - 1120 - 2009005F

Fundargerð 1120. fundar bæjarráð, sem haldinn var 7. september 2020 lögð fram til kynningar. Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bæjarráð - 1120 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja innkaupareglur og
    innkaupastefnu Ísafjarðarbæjar.

  • Bæjarráð - 1120 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja kaup á tölvubúnaði fyrir sveitarfélagið, í samræmi við minnisblað innkaupa- og tæknistjóra.

    Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 12 við fjárhagsáætlun 2020.
  • Bæjarráð - 1120 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð í snjómokstur, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs.
  • Bæjarráð - 1120 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samning milli Ísafjarðarbæjar og Ísófit ehf. um styrk vegna reksturs líkamsræktarmiðstöðvar.
  • Bæjarráð - 1120 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja kaupsamning við Sjósportmiðstöð Íslands ehf.

    Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna samningsins.

14.Bæjarráð - 1121 - 2009010F

Fundargerð 1121. fundar bæjarráð, sem haldinn var 14. september 2020 lögð fram til kynningar. Fundargerðin er í 21 lið.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson og Daníel Jakobsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Fræðslunefnd - 418 - 2009006F

Fundargerð 418. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 10. september 2020 lögð fram til kynningar. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Íþrótta- og tómstundanefnd - 211 - 2007006F

Fundargerð 211. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 2. september 2020 lögð fram til kynningar. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 543 - 2008015F

Fundargerð 543. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 9. september 2020 lögð fram til kynningar. Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?