Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
950. fundur 31. október 2016 kl. 08:05 - 08:35 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Melrakkasetur - aðalfundur 2016 - 2016100053

Lagt fram bréf stjórnar Melrakkaseturs Íslands, ódagsett, þar sem boðað er til aðalfundar 5. nóvember næstkomandi. Til fundarins er boðað með dagskrá.
Lagt fram til kynningar. Kristján Andri Guðjónsson, stjórnarmaður í Melrakkasetri Íslands ehf., mætir fyrir hönd Ísafjarðarbæjar á fundinn.

2.Ljósleiðarauppbygging sveitarfélaga - nýjar verklagsreglur við val tengistaða - 2016100068

Lagður fram tölvupóstur Einars Viðars Gunnlaugssonar, fyrir hönd Póst- og fjarskiptastofnunar, dagsettur 21. október sl. Stofnunin hefur gefið út leiðbeiningar um hvernig skal standa að því að velja staði sem skulu tengdir ljósleiðara innan sveitarfélagsins, þegar ljósleiðarauppbyggingin á sér stað með fjárstuðningi þess.
Lagt fram til kynningar.

3.Frímerkjaútgáfa í tilefni 150 ára kaupstaðarafmælis Ísafjarðarbæjar - 2015020031

Lagt fram bréf Vilhjálms Sigurðssonar, forstöðumanns frímerkjasölu Íslandspósts, dagsett 26. október sl., þar sem bæjarstjóra er boðið til útgáfuhófs í tilefni frímerkjaútgáfu 2016. Eitt af frímerkjunum sem gefið var út á árinu var vegna 150 ára afmælis Ísafjarðarkaupstaðar.
Bæjarráð þakkar gott boð en hefur ekki tök á að mæta í útgáfuhófið vegna bæjarstjórnarfundar á sama tíma.

4.Stígamót - styrkbeiðni - 2016090015

Lögð er fram umsókn Stígamóta um styrk vegna þjónustu Stígamóta á Norðurfjörðum Vestfjarða.
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina og vísar henni til fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar 2017.

5.Mánaðaryfirlit 2016 - 2016050081

Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra á fjármálasviði, dags. 28.október sl, um skatttekjur og laun janúar til september 2016.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 08:15

6.Ársfjórðungsuppgjör - 2016050081

Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra, dags. 28. október s.l. um árshlutauppgjör annars ársfjórðungs ásamt rekstaryfirlitum annars ársfjórðungs 2016.
Lagt fram til kynningar.

7.Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

Umræður um fjárhagsáætlun 2017.
Fyrri umræður um fjárhagsáætlun 2017 fara fram á næsta bæjarstjórnarfundi.
Edda María Hagalín yfirgefu fundinn kl. 08:28.

8.Fjallskilanefnd - 8 - 1610015F

Lögð er fram fundargerð 8. fundar fjallskilanefndar sem haldinn var 25. október sl., fundargerðin er í 2 liðum.
Þegar hefur verið gert ráð fyrir því að laga fjárgirðingar í þéttbýli og fjárréttum í fjárhagsáætlun 2017.
Lagt fram til kynningar.
  • Fjallskilanefnd - 8 Lagt fram til kynningar. Fjallskilanefnd skorar á bæjaryfirvöld að koma fjárgirðingum í þéttbýli og fjárréttum í lag fyrir næsta sumar.

9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 464 - 1610009F

Lögð er fram fundargerð 464. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 26. október sl., fundargerðin er í 7 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 464 Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að um óverulega breytingu á greinargerð sé að ræða og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 464 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna við útivistarsvæði við Naustahvilft.

Fundi slitið - kl. 08:35.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?