Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
929. fundur 09. maí 2016 kl. 08:05 - 08:35 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Ástand og uppbyggingarþörf á ferðamannastöðum - 2016050015

Lagt er fram bréf Karls Björnssonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. maí sl., vegna vinnu við landsáætlun um uppbyggingu innviða þar sem m.a. er óskað eftir tilnefningu tengiliðar sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur Þórdísi Sif Sigurðardóttur bæjarritara að vera tengiliður Ísafjarðarbæjar við Sambandið vegna landsáætlunar.

2.Minjasjóður Önundarfjarðar 2015-2016 - 2015030037

Lagt er fram minnisblað Gísla H. Halldórssonar bæjarstjóra varðandi kosningu stjórnarmanna í Minjasjóði Önundarfjarðar.
Bæjarráð gerir að tillögu sinni að bæjarstjórn kjósi Gísla H. Halldórsson bæjarstjóra og Þórdísi Sif Sigurðardóttur bæjarritara sem fulltrúa Ísafjarðarbæjar í stjórn sjóðsins.

3.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2015/2016 - 2015090027

Lagt er fram til kynningar bréf Steinþórs Bjarna Kristjánssonar, stjórnarformanns Fiskvinnslu Flateyrar, þar sem óskað er eftir aukningu á kvótaframlagi Byggðastofnunar.
Lagt fram til kynningar.

4.Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

Lögð eru fram til kynningar vinnugögn vegna fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar 2017.
Lagt fram til kynningar.

5.Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur - 2016010027

Lögð er fram beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, 670. mál.
Bæjarráð vísar frumvarpinu til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.

6.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð - 2016010027

Lögð er fram beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, 673. mál.
Lagt fram til kynningar.

7.Héraðsþing HSV 2016 - 2016050021

Lagt er fram boðsbréf á héraðsþing HSV sem haldið verður 18. maí n.k. kl. 17:00.
Bæjarráð þakkar boðið og hvetur bæjarfulltrúa til að mæta.

8.Jafnt búsetuform barna - 2016020019

Lagður er fram tölvupóstur Vigdísar Häsler, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, frá 4. maí sl. ásamt tölvupósti Lilju Borgar Viðarsdóttur, skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu, varðandi orðsendingu verkefnisstjórnar um jafnt búsetuform barna.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar.

9.Fundargerð 838. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019

Fundargerð 838. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 29. apríl sl.
Lögð fram til kynningar.

10.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 455 - 1604012F

Fundargerð 455. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 27. apríl sl., fundargerðin er í 13 liðum.
Lögð fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 455 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt að teknu tilliti til innsendrar athugasemdar og lóðir fyrir fiskihjalla sem ná inn á lóð Freyjugötu 6 verði felldar niður.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 455 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi og leyfi landeiganda til að plægja strenginn í jörðu verði veitt. Hafa skal samráð við Minjastofnun ríkisins.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 455 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Ísfelli ehf verði úthlutað framangreindri lóð með þeim reglum sem um hana gilda.

Fundi slitið - kl. 08:35.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?