Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1374. fundur 09. júlí 2026 kl. 08:10 - 08:42 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson varaáheyrnarfulltrúi
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Lánsumsókn til Ofanflóðasjóðs 2026 v. 2022-2025 - 2026070039

Lögð fram til samþykktar umsókn Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, f.h. Ísafjarðarbæjar, dags. 7. júlí 2026, um lán frá Ofanflóðasjóði vegna kostnaðar við ofanflóðavarnir árunum 2022-2026, við Kubba, Gleiðarhjalla, Hnífsdal og Flateyri, alls kr. 178.600.000, en um er að ræða áætlaða lántöku ársins 2026.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að sækja um lán frá Ofanflóðasjóði alls að fjárhæð kr. 178.600.000, vegna kostnaðar við ofanflóðavarnir á árunum 2022-2026, sem hluta af áætlaðri lántöku fjárhagsársins.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

2.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Tillaga frá 674. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. júní 2026, um að bæjarstjórn samþykki að vinna við endurskoðun á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050 haldi áfram í þeirri mynd sem var á liðnu kjörtímabili.

Er tillaga þessi lögð fyrir bæjarráð, í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vinna við endurskoðun á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050 haldi áfram í þeirri mynd sem var á liðnu kjörtímabili.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

3.Nefndarmenn 2026-2030 - skipulags- og mannvirkjanefnd - 2026050217

Tillaga Kristjáns Þór Kristjánssonar, formanns B-lista Framsóknar og óháðra, um að Jóhann Bæring Gunnarsson verði kosinn aðalmaður í skipulags- og mannvirkjanefnd, í stað Elísabetar Margrétar Jónasdóttur, og að nýr varamaður B-lista í nefndinni verði Kristján Þór Kristjánsson.
Bæjarráð samþykkir að kjósa Jóhann Bæring Gunnarsson sem aðalmann í skipulags- og mannvirkjanefnd, í stað Elísabetar Margrétar Jónasdóttur, og að kjósa nýjan varamann B-lista í nefndinni, Kristján Þór Kristjánsson.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

4.Nefndarmenn 2026-2030 - hafnarstjórn - 2026050217

Tillaga Kristjáns Þór Kristjánssonar, formanns B-lista Framsóknar og óháðra, um að Sædís Ólöf Þórsdóttir verði kosin varamaður í hafnarstjórn í stað Elísabetar Margrétar Jónasdóttur.
Bæjarráð samþykkir að kjósa Sædísi Ólöfu Þórsdóttur sem varamann í hafnarstjórn í stað Elísabetar Margrétar Jónasdóttur.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

5.Melrakkasetur - stjórn 2026-2030 og aðalfundur 2026 - 2026070035

Lagt fram aðalfundarboð Melrakkaseturs Íslands, en fundur er haldinn 13. júlí 2026, kl. 18, í Melrakkasetrinu, Eyrardal 4 í Súðavík.

Tillaga formanns bæjarráðs um að veita Tinnu Rún Snorradóttur umboð til að sækja aðalfund félagsins sem boðað hefur verið til þann 13. júlí 2026, og fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundi. Í því umboði felst að jafnaði að viðkomandi geti boðið sig fram í stjórn félagsins og tekið þar sæti nái hann kjöri á aðalfundi, sbr. 48. gr. samþykkta Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir að veita Tinnu Rún Snorradóttur umboð til að sækja aðalfund Melrakkaseturs Íslands sem boðað hefur verið til þann 13. júlí 2026, og fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundi. Í því umboði felst að jafnaði að viðkomandi geti boðið sig fram í stjórn félagsins og tekið þar sæti nái hann kjöri á aðalfundi, sbr. 48. gr. samþykkta Ísafjarðarbæjar.


Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

6.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 674 - 2606026F

Lögð fram til kynningar fundargerð 674. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. júní 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 674 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að vinna við endurskoðun á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050 haldi áfram í þeirri mynd sem var á liðnu kjörtímabili.

7.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 45 - 2606024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 45. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. júlí 2026.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.

8.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 170 - 2606029F

Lögð fram til kynningar fundargerð 170. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 7. júlí 2026.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:42.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?