Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175
Á 671. fundi nefndar þann 30. apríl 2026 var bókað: Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að ekki sé tekið nógu mikið tillit til athugasemda sem bárust vegna umferðarálags og umferðaröryggis.
Gissur Skarphéðinsson og Úlfur Þór Úlfarsson, hjá Eyrarkláfi ehf. mæta til fundar og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson mætir til fundar um fjarfundarbúnað til að kynna deiliskipulagsvinnuna.
Gissur Skarphéðinsson og Úlfur Þór Úlfarsson, hjá Eyrarkláfi ehf. mæta til fundar og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson mætir til fundar um fjarfundarbúnað til að kynna deiliskipulagsvinnuna.
Gissur Skarphéðinsson, Úlfur Úlfarsson og Kristinn Hróbjartsson yfirgefa fund kl. 14:05.
Gestir
- Kristinn Hróbjartsson - mæting: 13:30
- Gissur Skarphéðinsson - mæting: 13:30
- Úlfur Þór Úlfarsson - mæting: 13:30
2.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ber bæjarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að vinna við endurskoðun á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050 haldi áfram í þeirri mynd sem var á liðnu kjörtímabili.
3.Hvítisandur, Önundarfirði. Umsókn um lóðarstofnun úr Þórustöðum L141035 - 2023100060
Lagt fram erindi frá Eiríki Guðlaugssyni hjá Þjóðkirkjunni, dags. 23. júní 2026 þar sem er gerð athugasemd við afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar á fundi þann 18. júní 2026 við stofnun lóðarinnar Hvítasands úr landi Þórustaða þar sem óljós er hvort og þá að hvaða marki hin umrædda lóð falli innan jarðarinnar Holts L 141007 sem er í eigu Þjóðkirkjunnar.
Þjóðkirkjan gerir því kröfu um að ákvörðun nefndarinnar verði afturkölluð eða málið verði endurupptekið þar sem hluti lóðarinnar lendir innan svæðis sem afmarkað er sem þrætuland í áætlun eignarmarka HMS.

Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar afgreiðslu á stofnun lóðar þar til mat dómskvadds matsmanns, á staðsetningu kennileita í landamerkjabréfi jarðanna Holts og Þórustaða, liggur fyrir.
4.Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Hvítisandur, Önundarfirði. - 2026030225
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir við vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 við Hvítasand, Önundarfirði í landi Þórustaða, undir nýtt verslunar og þjónustusvæði fyrir sjóböð, greinargerð með uppdrætti, unnin af ráðgjöfum EFLU, dags. 26. febrúar 2026, skv. 36. gr. skipulagslaga 123/2010. Kynningartíminn var frá 17. apríl 2026, með athugasemdafresti til og með 15. maí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar erindinu þar til mat dómskvadds matsmanns, á staðsetningu kennileita í landamerkjabréfi jarðanna Holts og Þórustaða, liggur fyrir.
5.Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir við vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands, Önundarfirði í landi Þórustaða, undir nýtt verslunar og þjónustusvæði fyrir sjóböð, uppdráttur og greinargerð, unnin af ráðgjöfum EFLU, dags. 26. febrúar 2026, sbr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Kynningartíminn var frá 17. apríl 2026, með athugasemdafresti til og með 15. maí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar erindinu þar til mat dómskvadds matsmanns, á staðsetningu kennileita í landamerkjabréfi jarðanna Holts og Þórustaða, liggur fyrir.
6.Merkjalýsing vegna Gemlufalls, Lækjaróss og Mýra í Dýrafirði - 2026060148
Lagt fram erindi frá Jóni Skúlasyni, f.h. landeigenda að Gemlufalli, Lækjarósi, Neðri-Hjarðardal og Mýra í Dýrafirði, dags. 17. júní 2026, með ósk um staðfestingu Ísafjarðarbæjar á merkjalýsingu landamerkja milli jarðanna, unnin af Vilborgu Þórarinsdóttur merkjalýsanda hjá Landlínum ehf. dags. 22. maí 2026.
Í landamerkjaskráningu þessari hafa landamerki milli Gemlufalls, Lækjaróss og Mýra í Ísafjarðarbæ, verið hnitsett í samræmi við lýsingu þá sem fram kemur í landamerkjabréfum Gemlufalls (dags. 27.júní 1885) og Mýra (dags. 12.desember 1889), afsali Lækjaróss, landskiptum milli Neðri-Hjarðardals 1 og Neðri-Hjarðardals 2, er varðar innri mörk og samkvæmt fyrirmælum núverandi landeiganda jarðanna.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að staðfesta merkjalýsingu jarðanna Gemlufall, Lækjaróss og Mýra í Dýrafirði, sbr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.Umsagnarbeiðni. Breyting á Breiðdalslínu 1 í Dýrafirði - 2026060069
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. júní 2026, vegna breytinga á Breiðadalslínu 1 í Dýrafirði lögð fram.
Skipulagsfulltrúi bendir Landsneti á að í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 er gert ráð fyrir jarðstrengjum í jörð en ekki í lofti. Einnig bendir nefndin á að umrætt landsvæði er á náttúruminjaskrá.
8.Gangbraut Sólgötu - 2026060207
Lagður fram til kynningar, tölvupóstur frá Hauki Hermannssyni hjá Vegagerðinni dags. 29. apríl 2026, vegna öryggis við Sólgötu á Ísafirði. Vegagerðin hefur áhuga á að færa til gangbraut við suðvesturenda Sólgötu á Ísafirði. Færa hana þannig lengra frá Ísafjarðarkirkju.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd fagnar auknu umferðaröryggi á svæðinu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd fagnar auknu umferðaröryggi á svæðinu.
9.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010
Lagt fram minnisblað skipulags- og umhverfisfulltrúa, dags. 2. júní 2026 varðandi stöðu
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að auglýsa nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að komið hafi verið til móts við þær athugasemdir er snúa að deiliskipulaginu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að auglýsa breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að komið hafi verið til móts við þær athugasemdir er snúa að deiliskipulaginu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar athugasemdum sem bárust vegna umferðarálags og umferðaröryggis á svæðinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar til heildstæðar endurskoðunar á umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins.