Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Nefndarmenn 2026-2030 - lausn úr sveitarstjórn - 2026050217
Lagt fram erindi Elísabetar Margrétar Jónasdóttur, dags. 30. júní 2026, þar sem óskað er lausnar úr sveitarstjórn vegna trúnaðarstarfa sinna fyrir Súðavíkurhrepp þar sem hún hefur tekið að sér störf sveitarstjóra.
2.Kosningar - þjóðaratkvæðisgreiðsla ágúst 2026 - 2026060194
Fyrirhugaðar eru kosningar 29. ágúst 2026, þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt er um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Svarkostir á kjörseðlinum verða já og nei.
Lagt er til við bæjarráð að ákvarða um kjörstaði, en undanfarið hafa kjörstaðir verið í grunnskólum sveitarfélagsins og gefist vel.
Lagt er til við bæjarráð að ákvarða um kjörstaði, en undanfarið hafa kjörstaðir verið í grunnskólum sveitarfélagsins og gefist vel.
Bæjarráð samþykkir að kjörstaðir verði í Grunnskólanum á Ísafirði, Grunnskóla Önundarfjarðar, Grunnskólanum á Suðureyri og Grunnskólanum á Þingeyri.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
3.Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna 2025 - NPA - 2025050092
Tillaga frá 505. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 29. júní 2026, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglur um NPA þjónustu, sem gilda fyrir öll aðildarsveitarfélög að samningi um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum.
Bæjarráð samþykkir reglur um NPA þjónustu, sem gilda fyrir öll aðildarsveitarfélög að samningi um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
4.Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna 2025 - stuðningur við börn og fjölskyldur - 2025050092
Tillaga frá 505. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 29. júní 2026, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar gilda á þremur félagsþjónustusvæðum Velferðarþjónustu Vestfjarða, þ.e. Ísafjarðarbæ/Súðavíkurhreppi, Vesturbyggð og Ströndum og Reykhólum.
Bæjarráð samþykkir reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar gilda á þremur félagsþjónustusvæðum Velferðarþjónustu Vestfjarða, þ.e. Ísafjarðarbæ/Súðavíkurhreppi, Vesturbyggð og Ströndum og Reykhólum.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
5.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2026 - 2026020074
Á 1372. fundi bæjarráðs, þann 25. júní 2026, var lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 19. júní 2026, um launakostnað fyrir janúar - maí árið 2026.
Bæjarráð óskaði frekari skýringa á fræðslusviði og skíðasvæði, með hliðsjón af minnisblaði, og fól bæjarstjóra að leggja fram á næsta fundi.
Er nú lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 30. júní 2026, með umbeðnum skýringum.

Lagt fram til kynningar.
6.Slit Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks - 2026040011
Lagt fram til kynningar erindi Ólafs Þór Ólafssonar, stjórnarformanns Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, dags. 29. júní 2026, varðandi lokauppgjör fjárhagsmálefna samstarfssveitarfélaganna vegna slita félagsins.
Bæjarráð samþykkir framlagt lokauppgjör fjárhagsmálefna samstarfssveitarfélaganna vegna slita Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Hvítbók um byggðamál - 2026010014
Á 1372. fundi bæjarráðs, þann 25. júní 2026, var lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags 19. júní 2026, „Hvítbók um byggðamál". Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.
Jafnframt kom fram að á 1358. fundi bæjarráðs, þann 5. febrúar 2026, var umsagnarbeiðni innviðaráðuneytisins um „Grænbók um byggðamál", mál nr. 22/2026, lagt fyrir bæjarráð til kynningar. Bæjarráð frestaði málinu til næsta fundar.
Er það nú lagt fram að nýju.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja aftur fyrir bæjarráð til staðfestingar.
8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Grænbók um fjarskipti og netöryggi - 2026010014
Á 1372. fundi bæjarráðs, þann 25. júní 2026, var lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags 19. júní 2026, sem undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um. Bæjarráð frestaði málinu til næsta fundar.
Er það nú lagt fram að nýju.
Er það nú lagt fram að nýju.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna hvort tilefni sé til að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.
9.Aukaþing Fjórðungsþing Vestfirðinga - að vori 2026 - 2026050240
Lögð fram til kynningar þinggerð 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga á kosningaári, sem haldið var í fjarfundi þann 24. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Öldungaráð sveitarfélaga - 2026060184
Lagt fram til kynningar erindi Oddnýjar Árnadóttur, framkvæmdastjóra f.h. Landssambands eldri borgara dags. 23. júní 2026 varðandi skipun öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk. Jafnframt eru lögð fram áhersluatriði sem Landssamband eldri borgara setti fram vegna kosninga árið 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarstjórn á fyrsta fundi haustsins.
11.Búfjárbeit og ágangur búfjár - 2026060191
Lagt fram til kynningar erindi Rebekku Hilmarsdóttur, lögfræðings, f.h. Atvinnuvegaráðuneytisins dags. 24. júní 2026 varðandi búfjárbeit og ágang búfjár. Jafnframt eru lögð fram bréfin Búfjárbeit og ágangur búfjár og regluverk um búfjárbeit - sjónarmið matvælaráðuneytis.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í fjallskilanefnd.
12.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 - 2026060208
Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. júní 2026, þar sem kynnt er að kjörnefnd óski eftir því að þeir fulltrúar í sveitarstjórnum sem hafa áhuga á að gefa kost á sér til setu í stjórn Sambandsins tilkynni um það með því að senda tölvupóst á frambod@samband.is.
Lagt fram til kynningar.
13.Formannskjör Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2026060183
Lagt fram til kynningar erindi Vals Rafns Halldórssonar, sviðstjóra þróunarsviðs, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23. júní 2026 þar sem tilkynnt er að rafræn kosning formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst 15. ágúst og varir í tvær vikur. Framboðsfrestur til formannskjörs er til og með 15. júlí nk., kjörgengir eru aðal- og varafulltrúar í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
14.Landskjörstjórn - Fréttabréf - 2026060185
Lagt fram til kynningar fréttabréf landskjörstjórnar dags. í júní 2026
Lagt fram til kynningar.
15.Fjallskilanefnd - 21 - 2606022F
Lögð fram til kynningar fundargerð 21. fundar fjallskilanefndar, en fundur var haldinn 24. júní 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
16.Menningarmálanefnd - 181 - 2606018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 181. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 23. júní 2026.
Fundargerðin er í 6 liðum.
Fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.
17.Velferðarnefnd - 505 - 2606025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 505. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 29. júní 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.
Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Velferðarnefnd - 505 Velferðarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að gera slíkt hið sama.
-
Velferðarnefnd - 505 Velferðarnefnd fagnar þessum reglum sem spanna alla þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Í þeim felst góð yfirsýn yfir þjónustu sem í boði er, til hagræðis fyrir umsækjendur og starfsfólk. Velferðarnefnd samþykkir því reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að gera slíkt hið sama.
Fundi slitið - kl. 08:44.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.