Velferðarnefnd
Dagskrá
1.Fullnaðarákvarðanir 2026 - 2025120075
Lagðar fram upplýsingar um fullnaðarafgreiðslu mála í félagsþjónustu á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar fyrir janúar til og með maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
2.Sískráning 2026 - 2026030258
Lögð fram sískráning barnaverndartilkynninga til barnaverndarþjónustu Vestfjarða fyrir janúar til og með maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
3.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til samráðs mál frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu nr. 63/2026, Drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks. Umsagnarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til samráðs mál nr. 98/2026 frá Heilbrigðisráðuneytinu. Drög að aðgerðaráætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun fyrir árið 2026 til 2030. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til samráðs mál nr. 107/2026 frá Heilbrigðisráðuneytinu. Drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu. Umsagnarfrestur er til og með 22. júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.
6.Ýmis erindi velferðarsviðs - 2025110195
Lagðar fram til kynningar niðurstöður ungmennaþings 2026 í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Þing var haldið á Ísafirði þann 08. apríl 2026 en Barnaheill hélt sambærileg þing á sex stöðum á landinu.
Lagt fram til kynningar.
7.Varðandi samkomulag við ríkið um þjónustu við börn með fjölþættan vanda - 2026060199
Lagður fram tölvupóstur frá félagsþjónustufulltrúa Sambandsins dags. 23. júní 2026. Vakin er athygli sveitarfélaga á að í nýrri reglugerð um þjónustu við börn með fjölþættan vanda hafi ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt viðmið sem samkomulag hafði verið gert um. Þetta muni fela í sér verulegan kostnað fyrir sveitarfélög landsins.
Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar lýsir yfir vonbrigðum með einhliða skilgreiningar mennta- og barnamálaráðuneytis sem þrengja viðmið sem áður hafði verið gert samkomulag um. Velferðarnefnd minnir á að fjármagn vegna sis mats barna með fötlun rennur alfarið til skólanna en afar lágt framlag af hálfu Jöfnunarsjóðs rennur til félagsþjónustu vegna þjónustu utan skólatíma og á sumrin, sem og annarrar viðamikillar þjónustu sem þessi viðkvæmi hópur er í þörf fyrir. Þegar vandi barna er fjölþættur eykst þjónustuþörfin óhjákvæmilega sem hefur þung fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin. Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar skorar á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og fer fram á að unnið verði eftir samkomulaginu sem gert var á milli ríkis og sveitarfélaga þann 19. mars 2025.
8.Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna 2025 - 2025050092
Lagðar fram reglur um NPA. Reglurnar eiga að gilda í öllum aðildarsveitarfélögum Velferðarþjónustu Vestfjarða.
Velferðarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að gera slíkt hið sama.
9.Velferðarþjónusta Vestfjarða - endurskoðun reglna 2025 - 2025050092
Lagðar fram reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar gilda á þremur félagsþjónustusvæðum Velferðarþjónustu Vestfjarða, þ.e. Ísafjarðarbæ/Súðavíkurhreppi, Vesturbyggð og Ströndum og Reykhólum.
Velferðarnefnd fagnar þessum reglum sem spanna alla þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Í þeim felst góð yfirsýn yfir þjónustu sem í boði er, til hagræðis fyrir umsækjendur og starfsfólk. Velferðarnefnd samþykkir því reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að gera slíkt hið sama.
Fundi slitið - kl. 13:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?