Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Styrkveiting til ólympíufara frá Ísafirði - 2026030014
Lagt fram minnisblað Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur, bæjarstjóra, dags. 3. mars 2026, þar sem lagt er til að veittur verði styrkur að fjárhæð kr. 1.000.000, til handa Degi Benediktssyni og Örnu Sigríði Albertsdóttur, vegna þátttöku þeirra á Ólympíuleikum, og að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna málsins.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra samkvæmt minnisblaði um að veittur verði tveir styrkir, hvor að fjárhæð kr. 1.000.000, til handa Ólympíuleikjaförum, Degi Benediktssyni og Örnu Sigríði Albertsdóttur, og að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna málsins.
2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 4 - ólympíufarar - 2025120020
Lagður fram til samþykktar viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna styrkveitinga til tveggja Ólympíuleikafara.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna styrkveitinga til tveggja Ólympíuleikafara.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
3.Leynir ÍS-16, skn. 2325 - forkaupsréttur - 2026030047
Lagt fram erindi Gunnars Torfasonar f.h. Tjaldtanga ehf., dags. 3. mars 2026, þar sem Ísafjarðarbæ er boðinn forkaupsréttur að skipinu Leyni Ís-16, sknr. 2325, að fjárhæð kr. 55.000.000, með vísan til 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006. Skipið er selt án aflahlutdeilda, aflamarks, réttar til byggðakvóta, skel- og rækjubóta, aflareynslu og allra annarra veiðiheimilda og réttinda eins og kveðið er á í kaupsamningnum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn um að hafna forkaupsrétti að skipinu Leyni Ís-16, að fjárhæð kr. 55.000.000.
4.Dagur Norðurlandanna 2026 - 2026030049
Lagt fram erindi Ólafs Guðsteins Kristjánssonar, formanns Norræna félagsins á Vestfjörðum, dags. 2. mars 2026, þar sem vakin er athygli á nýrri deild í Norræna félaginu á Íslandi, fyrir Vestfirði, bryddað upp á mögulegum samstarfsflötum og óskað styrks vegna fánaborga á Norræna deginum 2026 þann 23. mars 2026.
Bæjarráð fagnar erindi Norræna félagsins á Vestfjörðum, og felur bæjarstjóra að hafa milligöngu um flöggun á Norræna deginum 23. mars 2026.
5.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Lagðar fram til staðfestingar 12 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Bæjarráð staðfestir meðfylgjandi 12 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
6.Farsældarráð Vestfjarða - 2025090182
Lagt fram erindi Ernu Leu Bergsteinsdóttur dags. 18. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir staðfestingu á tilnefningum í Farsældarráð Vestfjarða vegna sameiginlegra fulltrúa skólastjórnenda, foreldra og varafulltrúa í stjórn.
Lagt er til að bæjarráð samþykki eftirfarandi tilnefningar:
Fjölnir Ásbjörnsson - Fulltrúi foreldra í farsældarráði
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir - Varafulltrúi í stjórn farsældarráðs
Lagt er til að bæjarráð samþykki eftirfarandi tilnefningar:
Fjölnir Ásbjörnsson - Fulltrúi foreldra í farsældarráði
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir - Varafulltrúi í stjórn farsældarráðs
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Fjölnir Ásbjörnsson verði tilnefndur fulltrúi foreldra í farsældarráði og að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir veði varafulltrúi í stjórn farsældarráðs.
7.Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025 - 2026030050
Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025, sem staðfestur var af stjórn FV og endurskoðanda á stjórnarfundi þann 26. febrúar 2026 og vísað til afgreiðslu 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga.
Lagt fram til kynningar.
8.Fundarboð aðalfundur 2026 LS - 2026030048
Lagt fram til kynningar fundarboð stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga um aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 2026, sem haldinn verður 20. mars 2026, kl. 14, á Grand Hótel Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.
9.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 166 - 2602021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 166. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 166 Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýjustu drög að Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að fella úr gildi Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá 2017 við gildistöku Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar.
Fundi slitið - kl. 09:10.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?