Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
166. fundur 25. febrúar 2026 kl. 08:30 - 09:43 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Halldóra Björk Norðdahl formaður
  • Bernharður Guðmundsson aðalmaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Þorvaldur Óli Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Erla Margrét Gunnarsdóttir skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá

1.Loftslagsstefna Ísafjarðarbæjar - 2025060021

Á 164. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 14. janúar 2026 fól nefndin Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt Halldóru Björk Norðdahl, formanni nefndar, að vinna drög að loftlagsstefnu og kynna fyrir nefnd. Fyrstu drög að loftslagsstefnu voru kynnt á 165. fundi nefndarinnar þann 11. febrúar 2026, einnig var lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa dags. 9. febrúar 2026 er varðar Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá árinu 2017. Nú eru lögð fram ný drög að Loftlagsstefnu Ísafjarðarbæjar, dags. 23. febrúar 2026.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýjustu drög að Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að fella úr gildi Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá 2017 við gildistöku Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar.

2.Númerslausir bílar 2025 - 2025050071

Lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttir, skipulags- og umhverfisfulltrúa dags. 23. febrúar 2026 um áframhaldandi stöðu mála er varða númerslausa bíla á landi í eigu sveitarfélagsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd fagnar árangri í fækkun númerslausra bíla í landi sveitarfélagsins og hvetur íbúa til að huga að númerslausum bílum og öðrum lausamunum bæði á landi sveitarfélagsins og inn á einkalóðum með það fyrir augum að bæta ásýnd Ísafjarðarbæjar.

3.Túngata Ísafirði - Umferðaröryggi - 2026020069

Á 165. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar var tekinn fyrir tölvupóstur dags. 11. janúar 2026 frá íbúa á Túngötu vegna umferðaröryggis. Tók nefndin undir áhyggjur íbúa og frestaði máli til næsta funda skv. tilmælum Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa í minnisblaði dags. 9. febrúar, til að nefndarmenn gætu kynnt sér aðstæður. Nú er minnisblaðið lagt fram að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir mögulegar lausnir til að bæta umferðaröryggi á Túngötu. Nefndin telur að einstefna eða vistgata séu ekki vænlegar leiðir að svo stöddu, en að æskilegt sé að skoða uppsetningu hraðahindrana, blikkandi hraðaskilti og að taka þurfi á bílastæðamálum á svæðinu.

Nefndin samþykkir að boða fulltrúa íbúa á Túngötu ásamt Páli Brynjari Pálssyni, verkstjóra áhaldahúss, á næsta fund nefndarinnar til að ræða mögulegar úrbætur og vinna að úrlausn málsins.

4.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni úr Skipulagsgátt dags. 16. febrúar 2026 þar sem Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða kynnir tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, ásamt umhverfisskýrslu og fylgiriti. Aðildarsveitarfélög eru öll sveitarfélög á Vestfjörðum; Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur. Tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða ásamt forsendum og umhverfismati hennar, er kynnt í Skiplagsgátt. Kynningartíminn stendur yfir frá 16. febrúar 2026 til 7. apríl 2026. Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á Skipulagsgáttinni fyrir lok dags 7. apríl 2026. Um er að ræða fyrsta svæðisskipulagið sem tekur til Vestfjarða í heild og markar sameiginlega stefnu sveitarfélaga til ársins 2050. Í svæðisskipulagstillögunni eru sett fram leiðarljós og markmið undir fimm málefnasviðum; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð. Hver málaflokkur hefur sín markmið og aðgerðir ásamt skýringum við stefnuna. Auglýsing tillögunnar og umhverfismatsskýrslu er á grundvelli 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:43.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?