Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Trúnaðarmál - fjárfestingarmál - 2026010261
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð.
Trúnaðarmál kynnt fyrir bæjarráði.
2.Erindi til Alþingis um rannsókn á málsatvikum í tengslum við snjóflóð á Flateyri 26. október 1995 - 2026020153
Mál sett á dagskrá að beiðni formanns bæjarráðs, Gylfa Ólafssonar.
Þann 15. desember birti Rannsóknarnefnd Alþingis skýrslu sína um málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík árið 1995. Til umfjöllunar er á Alþingi að slíkar rannsóknarnefndir séu stofnaðar í kjölfar stórra atburða svo sem náttúruhamfara.
Þann 15. desember birti Rannsóknarnefnd Alþingis skýrslu sína um málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík árið 1995. Til umfjöllunar er á Alþingi að slíkar rannsóknarnefndir séu stofnaðar í kjölfar stórra atburða svo sem náttúruhamfara.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar beinir því til Alþingis að skoðað verði hvort tilefni sé til að sambærileg rannsókn fari fram um flóðið á Flateyri árið 1995.
3.Þjónustusamningur Björgunarsveitin Sæbjörg 2026 - 2026020100
Lagður fram til samþykktar þjónustusamningur við Björgunarsveitina Sæbjörgu til 5 ára.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þjónustusamning við Björgunarsveitina Sæbjörgu til 5 ára.
4.Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Árneshrepps 2026-2038, mál nr. 01652026 - 2026020099
Lögð fram umsagnarbeiðni frá skipulagsgátt dags. 11. febrúar 2026 þar sem Árneshreppur óskar eftir umsögn í máli nr. 0164/2026 Aðalskipulag Árneshrepps 2026-2038.
Kynningartími er frá 11. febrúar - 11. mars 2026.
Kynningartími er frá 11. febrúar - 11. mars 2026.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.
5.Lánasjóður sveitarfélaga - ýmis erindi 2026 - 2026020110
Lagt fram erindi frá Óttari Guðjónssyni f.h. Lánasjóðs sveitarfélaga dags. 12. febrúar 2026 þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Tilnefningarnefnd óskar eftir að framboð séu send í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar 2026
Lagt fram til kynningar.
6.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Lagt fram til kynningar erindi Innviðaráðuneytisins, dags. 17. febrúar 2026, varðandi úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 2025/2026. Að lokinni kynningu tillögunnar á vef ráðuneytisins og yfirferð fyrirliggjandi gagna hefur ráðuneytið tekið málið til efnislegrar meðferðar. Í erindinu segir að með hliðsjón af framkomnum rökstuðningi og aðstæðum í viðkomandi byggðarlagi fellst ráðuneytið á framlagðar tillögur sveitarstjórnar. Auglýsing um sérreglur verður send Stjórnartíðindum til birtingar og að því loknu verður Fiskistofu falið að auglýsa byggðakvóta til umsóknar í samræmi við gildandi reglur og staðfestar sérreglur.
Lagt fram til kynningar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 -Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs - 2026010014
Lagt fram mál úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 5. febrúar 2026, þar sem atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 31/2026, "Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs". Frestur til að senda inn tillögur og ábendingar er til og með 20. febrúar 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
8.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 24. fundar svæðisskipulagsnefndar, en fundir voru haldnir 11. febrúar 2026.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 667 - 2602002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 667. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 667 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu skipulagslýsingar Breiðadalslínu 1 um Dýrafjarðargöng vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2010-2020, skv. 30. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 38 - 2602009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 38. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 11. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.
11.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 165 - 2602007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 165. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 11. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.
Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?