Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Lögð fram til kynningar, drög að köflum 1-8 í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
Lagt fram til kynningar.
2.Miðbær Ísafjarðar. Deiliskipulag - 2023050086
Lögð fram drög að nýju deiliskipulagi miðbæjar Ísafjarðar, unnið af ráðgjöfum Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ í febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar og umræðna.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur áherslur á græn svæði næst miðbæ og tengingar þar á milli. Nefndin felur Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, að vinna málið áfram.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar drögum inn í hafnarstjórn til kynningar.

3.Ósk um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð - 2026020083
Lögð fram umsókn um lóð, frá Atlantsolíu ehf., þar sem óskað er eftir um 1.000 m2 lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð við gatnamót Skutulsfjarðarbrautar og
Vestfjarðavegar hjá athafnasvæðinu austan vegar. Sjálfsafgreiðslustöðin mun bjóða upp á dísil, bensín og rafmagnshleðslu auk þess er gert ráð fyrir sjálfvirkri fólksbílaþvottastöð.
Vestfjarðavegar hjá athafnasvæðinu austan vegar. Sjálfsafgreiðslustöðin mun bjóða upp á dísil, bensín og rafmagnshleðslu auk þess er gert ráð fyrir sjálfvirkri fólksbílaþvottastöð.
Þar sem að umrætt svæði er við náttúruverndarsvæði, óskar skipulags- og mannvirkjanefnd eftir umsögn frá Náttúrustofu Vestfjarða og Náttúruverndarstofnun.
4.Skarfatangi 6 (áður Suðurtangi 16) á Ísafirði. Umsókn um byggingarlóð - 2026020006
Lögð fram umsókn dags. 23. janúar 2026, um byggingarlóð við Skarfatanga 6 (áður Suðurtanga 16) á Ísafirði, frá Hirti Erlendssyni hjá Hampiðjunni hf.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að úthluta Hampiðjunni hf. lóðinni við Skarfatanga 6 (áður Suðurtanga 16) á Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
5.Færsla varafls á Suðureyri - 2026020082
Lagt fram erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dags. 22. janúar 2026 varðandi færslu varaafls á Suðureyri, frá Hlaðsnesi yfir að lóð kyndistöðvar OV við Hlíðarveg 14.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið en leggur áherslu á að gætt verði að hljóðmengun í hönnun. Nefndin óskar eftir frekari gögnum.
6.Hveravík Reykjanesi - Lóð í fóstur - 2026020084
Lagður fram tölvupóstur frá Rúnari Þór Konráðs Brynjólfssonar fyrir hönd Hveravíkurfjölskyldunnar, dags. 1. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að taka í fóstur landsvæði inni í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Svæðið sem að um ræðir er frá Pumphúsvík að vestanverðum Vestaritanga.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna drög að afnotasamningi og leggja fram að nýju.
7.Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu - 2026020060
Lögð fram beiðni til Ísafjarðarbæjar, frá Landseti ohf, dags. 20. janúar 2026, um að gerð verði breyting á gildandi aðalskipulagi vegna Breiðadalslínu 1 sem heimili lagningu loftlínu norðan Dýrafjarðaganga að núverandi mastri línunnar sem stendur skammt austan við veginn yfir Dýrafjörð, auk mögulegrar efnistöku. Svæðið er á náttúruminjaskrá auk þess að framkvæmdin fellur undir lög um umhverfismat
Breiðadalslína 1 lægi áfram frá Mjólkárvirkjun að göngunum, þar sem hún tengdist strengnum sem liggur um göngin, en norðan ganga yrði línan lögð áfram sem loftlína að núverandi mastri línunnar sem stendur skammt austan við veginn yfir Dýrafjörð.
Landsnet hefur fengið staðfestingu Skipulagsstofnunar á því að framkvæmdin falli undir tölulið 13.02 í viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Landsnet vinnur nú að gerð tilkynningar til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu.

Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu skipulagslýsingar Breiðadalslínu 1 um Dýrafjarðargöng vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2010-2020, skv. 30. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.Lagning strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, umsagnarbeiðni - 2026020058
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni til Ísafjarðarbæjar frá Skipulagsstofnun úr skipulagsgátt, dags. 23. janúar 2026, vegna tilkynningar um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu), Lagning strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, mál nr. 0084/2026.
Orkubú Vestfjarða ohf. áformar lagningu 33 kV og 11 kV jarðstrengja milli Skutulsfjarðar og Súðavíkur í Álftafirði. Strengleiðin er rúmlega 18 km löng og mun fylgja að mestu vegi og öðrum strengjum.
Kynningartími er frá 23. janúar 2026 til og með 20. febrúar 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að skila umsögn.
9.Túngata 22, Ísafirði. Fyrirspurn um minnkun lóðar - 2025100162
Á 662. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 12. nóvember 2026 var lögð fram ósk frá eigendum bílskúra við Túngötu 22 á Ísafirði um lóðarminnkun. Nú er lagt fram mæliblað tæknideildar dags. 10. febrúar 2026 þar sem lóð minnkar úr 860 fm í 644,4 fm.
Skipulags- og mannvirkjanefnd heimilar útgáfu á nýjum lóðarleigusamning við Túngötu 22 á Ísafirði, bílskúralóð, vegna minnkunar lóðar.
10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 28. janúar 2026, frá Sigrúnu Helgu Sigurjónsdóttur f.h. nefndar og greiningarsviðs Alþingis, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál "Tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152." Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Tillaga þessi til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152, er lögð fram í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laga um verndar- og
orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Um er að ræða fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma sem verkefnisstjórn 5. áfanga áætlunarinnar hefur fjallað um.

11.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 27. janúar 2026, þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 16/2026, „Frumvarp til laga um til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum“. Umsagnarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
12.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080
Lögð fram tilkynning úr Skipulagsgátt, dags. 6. febrúar 2026 vegna vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða, 603. mál 2024. Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða samþykkti á fundi þann 26. maí 2025 vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2026-2050 til kynningar.
Skipulagsstofnun hefur farið yfir málsgögn tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050 með athugasemdum með viðbrögðum, sem þarf að bregðast við fyrir auglýsingu á tillögu að nýju Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, dags. 6. febrúar 2026.

13.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 89 - 2512010F
Lögð fram til kynningar, fundargerð 89. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 11. desember 2025.
Lagt fram til kynningar.
14.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 90 - 2601026F
Lögð fram til kynningar, fundargerð 90. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:12.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?