Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1324. fundur 05. maí 2025 kl. 08:10 - 09:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson formaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Kristján Þór Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Grunnskólinn Ísafirði - Þakendurbætur norðurhlið gegnt Austurvegi - 2025040171

Lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 2. maí 2025, varðandi opnun tilboða í þakendurbætur á norðurhlið Grunnskólans á Ísafirði, gegnt Austurvegi, en óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Geirnaglann ehf., að fjárhæð kr. 22.013.200.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025 - 2025020006

Lagður fram til samþykktar viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2025, vegna breytinga á launaáætlun, vegna deildar skipulagsfulltrúa og nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði.



Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði. Gert er ráð fyrir vikulegum fundum í maí og júní, og mánaðarlegum fundum eftir það á árinu 2025. Alls 15 fundir. Þrír nefndarmenn sem fá greitt fyrir nefndarsetu. Kostnaður alls kr. 1.914.700. Tekjur vegna þessara launagjalda koma til við endurgerð launaáætlunar skipulagsfulltrúa en ekki var ráðið í stöðuna í upphafi árs, eins og launaáætlun gerði ráð fyrir. Alls kr. 5.536.108. Mismunur á deildunum fer inn á óvenjulega liði (veikinda- og launapott), kr. 3.621.408.



Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er aukinn kostnaður um kr. 0,-

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 223.000.000.

Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 995.000.000.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 10 við fjárhagsáætlun 2025, vegna breytinga á launaáætlun, vegna deildar skipulagsfulltrúa og nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði.

Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði. Gert er ráð fyrir vikulegum fundum í maí og júní, og mánaðarlegum fundum eftir það á árinu 2025. Alls 15 fundir. Þrír nefndarmenn sem fá greitt fyrir nefndarsetu. Kostnaður alls kr. 1.914.700. Tekjur vegna þessara launagjalda koma til við endurgerð launaáætlunar skipulagsfulltrúa en ekki var ráðið í stöðuna í upphafi árs, eins og launaáætlun gerði ráð fyrir. Alls kr. 5.536.108. Mismunur á deildunum fer inn á óvenjulega liði (veikinda- og launapott), kr. 3.621.408.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er aukinn kostnaður um kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 223.000.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 995.000.000.
Axel yfirgaf fund kl. 8.20.

3.Aflamark Byggðarstofnunar á Flateyri - 2025040203

Lagt fram erindi Reinhards Reynissonar, f.h. Byggðastofnunar dags. 23. apríl 2025 þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar vegna aflamarks Byggðastofnunar á Flateyri. Jafnframt eru lögð fram fylgiskjöl sem bárust með erindinu. Framlengdur frestur til skila er 5. maí 2025.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu Byggðastofnunar.

4.Þjónustustefna 2023-2026 - 2022110084

Á 1323. fundi bæjarráðs, þann 28. apríl 2025, var samþykkt tillaga í minnisblaði Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 23. apríl 2025, um að næstu skref við gerð Þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar verði að halda íbúafundi á Þingeyri, Suðureyri og Flateyri, dagana 26., 27. og 28. maí nk. þar sem kortlagning og grunnefni stefnunnar verði til kynningar og umræðu, meðal bæjarfulltrúa og íbúa. Jafnframt að rafrænir miðlar verði nýttir, s.s. Betra Ísland.is, þar sem öllum íbúum gefst færi á að láta rödd sína heyrast, um einstaka þjónustuflokka eða stefnuna í heild.



Eru nú lögð fram til kynningar drög að Þjónustustefnu til kynningar, en umrætt gagn verður kynnt nú birt og kynnt íbúum og óskað samtals og athugasemda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að uppfæra orðalag í Þjónustustefnunni með hliðsjón af umræðum á fundinum.

Þá hvetur bæjarráð íbúa til að mæta á íbúafundina í lok maí.

5.Rekstrarleyfi, tækifærisleyfi og aðrar leyfisveitingar 2025 - 2025010152

Lagt fram erindi Guðrúnar Elínborgar Þorvaldsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum dags. 25. apríl 2025, en óskað er umsagnar um breytingar á forsvarsmanni rekstrarleyfis fyrir Golfskálann í Tungudal.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við breytingar á forsvarsmanni rekstrarleyfis fyrir Golfskálann í Tungudal.
Fylgiskjöl:

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2025 - 2025010004

Lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29. apríl 2025, Þar sem umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 270. mál - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Umsagnarfrestur er til og með 13. maí 2025 á umsagnagátt Alþingis.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

7.Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2025. - 2025020184

Lögð fram til kynningar fundargerð 152. fundar Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis sem haldin var þann 10. apríl 2025 og ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða fyrir árið 2024.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.

8.Vestfjarðastofa - fundargerðir 2025 - 2025020011

Lögð fram til kynningar er fundargerð 68. stjórnarfundar Vestfjarðarstofu og Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldin var 9. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir 2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2025010017

Lögð fram til kynningar er fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

10.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir og ýmis erindi 2025 - 2025040016

Lögð fram til kynningar eru fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 15. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

11.Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða - 6 - 2504007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, en fundur var haldinn 11. apríl 2025.



Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.

12.Hafnarstjórn - 261 - 2504003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 261. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 16. apríl 2025.



Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.

13.Cruise Iceland - ýmis erindi 2024-2025 - 2024090023

Á 261. fundi hafnarstjórnar, þann 16. apríl 2025, var kynnt tillaga frá stjórn Cruise Iceland að breytingu á rekstri félagsins, þar sem lagt verður til á aðalfundi að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf þar sem mikil vinna hefur verið og er fyrirsjáanleg.



Á fundi hafnarstjórnar var jafnframt lagt fram minnisblað hafnarstjóra, dags. 15. apríl 2025, vegna málsins.



Mál þetta er tekið inn með afbrigðum að beiðni formanns bæjarráðs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda erindi til stjórnar Curise Iceland þar sem óskað er eftir því, með auglýsingu stöðu framkvæmdastjóra, að starfstöð geti verið á Ísafirði eða á Akureyri, en ekki einungis á höfuðborgarsvæðinu. Starfsstaða framkvæmdastjóra geti t.d. verið á skrifstofum Hafna Ísafjarðarbæjar.

14.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 651 - 2504012F

Lögð fram til kynningar fundargerð 651. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2025.



Fundargerðin er í 14 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 651 Skipulags og mannvirkjanefnd telur breytinguna óverulega þar sem ekki eru breytingar á nýtingarhlutfalli, formi og eða útliti. Breytingin hefur ekki áhrif á neina aðra en framkvæmdaaðila og telur nefndin ekki þörf á að grenndarkynna breytinguna þar sem ekki eru aðrir hagsmunaaðilar í málinu. Leggur því nefndin til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á uppdrætti í samræmi við 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?