Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
651. fundur 29. apríl 2025 kl. 14:00 - 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Jóna Símonía Bjarnadóttir aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson varamaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Fundargerð ritaði: Axel Rodriguez Överby Sviðsstjóri Umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá
Erla Margrét Gunnarsdóttir sat fund sem gestur.

1.Tunguskeið, Skutulsfirði. Nýtt deiliskipulag á svæði í2 - 2024090115

Gunnar Páll Eydal, ráðgjafi hjá Verkís ehf. mætir til fundar til að ræða valkosti um útfærslu deiliskipulags á svæði Í2 á Tunguskeiði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar Gunnari Páli hjá Verkís hf., fyrir góða kynningu.

2.Miðbær Ísafjarðar. Deiliskipulag - 2023050086

Lagt fram minnisblað Verkís hf., dags. 14. nóv. 2023, en minnisblaðið var áður lagt fram á fundi nefndarinnar þann 15. nóv 2023. Í minnisblaði er farið yfir lóðir sem hægt væri að úthluta á grundvelli núgildandi skipulags.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir því að skoðaðir verði fleiri möguleikar og minnisblað Verkís verði uppfært.

3.Frístundasvæði F21 í Dagverðardal, breyting á deiliskipulagi - 2025040135

Lagt fram erindi Jóns Grétars Magnússonar sem barst í tölvupósti þann 10. apríl 2025, þar sem óskað er eftir því að gera breytingu á deiliskipulagi frístundalóða í Dagverðardal.



Breytingin sem lögð er til felur í sér að fjórar lóðir breytast úr gulum (frístundalóðir) í appelsínugulan lit (frístundalóðir til útleigu) og að fjórum lóðum verði breytt úr appelsínugulum (frístundalóðir til útleigu) í gulan (frístundalóðir). Hlutfallið milli gulu svæðanna (frístundalóðir) og appelsínugulu svæðanna (frístundalóðir til útleigu) helst þar með óbreytt, í samræmi við ákvæði í grein 4.3 deiliskipulagsins.
Skipulags og mannvirkjanefnd telur breytinguna óverulega þar sem ekki eru breytingar á nýtingarhlutfalli, formi og eða útliti. Breytingin hefur ekki áhrif á neina aðra en framkvæmdaaðila og telur nefndin ekki þörf á að grenndarkynna breytinguna þar sem ekki eru aðrir hagsmunaaðilar í málinu. Leggur því nefndin til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á uppdrætti í samræmi við 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga.

4.Kerfisáætlun 2025-2034, umhverfismat áætlana. Umsagnarbeiðni - 2025040137

Lögð fram til kynningar tilkynning úr Skipulagsgátt þar sem Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Ísafjarðarbæjar vegna kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034, 509. mál, kynning umhverfismatsskýrslu (umhverfismat áætlana).



Í kerfisáætlun fjallar Landsnet um hvernig skuli þróa og endurnýja flutningskerfi raforku. Kerfisáætlun er ætlað að tryggja að vel sé staðið að þróun flutningskerfisins, ákvarðanatakan byggi á bestu tiltæku þekkingu og sé opin og aðgengileg hagaðilum.



Kynningartími er frá 9. apríl 2025 til 31. maí 2025.
Gögn lögð fram til kynningar, en nefndin frestar afgreiðslu umsagnar skv. beiðni til næsta fundar.

5.Tillaga að rekstarleyfi Arctic Smolt hf. Norðurbotni, Tálknafirði - 2025040125

Lagður fram til kynningar, tölvupóstur frá frá Steinar Rafn Beck Baldurssyni hjá Matvælastofnun dags. 9. apríl 2025 þar sem stofnunin hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi Arctic Smolt hf. Norðurbotni í Tálknafirði. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 2.400 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og regnbogasilung. Rekstraraðili er með leyfi fyrir allt að 1.000 tonna hámarkslífmassa að Norðurbotni.



Framkvæmdin var tilkynnt til Skipulagsstofnunar sem mat það svo að fyrirhuguð framkvæmd væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Framkvæmdin væri því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.



Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2207115. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 8. maí 2025.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

6.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 15. og 16. fundar svæðisskipulagsnefndar, en fundir voru haldnir 10. mars og 31. mars 2025.
Lagt fram til kynningar.

7.Brekkugata 7 - Umfangsflokkur 2 - 2025030179

Lögð er fram umsókn Gunnlaugs Björns Jónssonar um byggingarleyfi f.h. Garðagleði ehf. Sótt er um leyfi til að stækkunar húsnæðis á þann veg að þakhæð sé byggð á núverandi hús, með stiga á milli hæða. Eins stendur til að klæða húsið með bárujárni. Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá Gingi teiknistofu ásamt jákæðri umsögn Minjastofnunar vegna framkvæmdanna. Óskað er eftir áliti nefndarinnar með vísan til mögulegrar þarfar á grenndarkynningu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til að framkvæmdin verði grenndarkynnt fyrir eigendum fasteigna við Brekkugötu 5, 6 og 8, ásamt Fjarðargötu 10a, skv.2. mgr. 44.gr. skipulagslaga.

8.Útgáfa ferlisleiðbeininga fyrir skipulagsgerð - 2025020075

Lagður fram tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, dags. 5. mars 2025 þar sem stofnunin hefur unnið að innleiðingum stafræns deiliskipulags, meðal annars með gerð gagnalýsingar og leiðbeininga auk funda um innleiðingu og innihald gagna.

Jafnframt er lagður fram tölvupóstur frá Skipulagsstofnun þar sem stofnunin vill vekja athygli á námskeiðum og lausnum til þeirra sem vinna með GIS gögn og CAD teikningar, dags. 27. mars 2025.
Lagt fram til kynningar.

9.Útgáfa ferlisleiðbeininga fyrir skipulagsgerð - 2025020075

Lagður fram tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, dags. 4. apríl 2025 þar sem stofnunin hefur unnið að þróun gátlista sem er m.a. ætlað að nýtast skipulagsfulltrúum við yfirferð skipulags áður en gögn eru lögð fram í Skipulagsgátt til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun. Einnig geta þeir nýst skipulagsráðgjöfum við undirbúning skipulagsáætlana.
Lagt fram til kynningar.

10.Umhverfismatsdagurinn 2025 - 2025040139

Lagður fram tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, dags. 11. apríl 2025 þar sem stofnunin kynnir Umhverfismatsdaginn, sem verður haldinn þann 5. júní í Nauthól og í beinu streymi.

Umhverfismatsdagurinn er árleg ráðstefna um umhverfismat, þar sem fjallað er um það sem efst er á baugi í málaflokknum hverju sinni.
Lagt fram til kynningar.

11.Landsskipulagsstefna 2024-2038. Útgáfa stefnu eftir landfræðilegri skiptingu - 2025040121

Lagður fram til kynningar, tölvupóstur dags. 9. apríl 2025 frá Skipulagsstofnun vegna útgáfa á Landsskipulagsstefnu 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2024-28.

Útgáfunni er ætlað að gera efni stefnunnar aðgengilegra þeim sem vinna að framfylgd hennar, sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á eða koma að skipulagsgerð.
Lagt fram til kynningar.

12.Alþjóðleg ráðstefna um ofanflóðavarnir - SNOW25 á Ísafirði - 2025040138

Lagður fram tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, dags. 14. mars 2025 þar sem stofnunin vill vekja athygli á ráðstefnu um ofanflóðavarnir sem verður haldin á Ísafirði 30. september til 3. október 2025, en stofnunin er hluti af hópi skipuleggjenda.



Ráðstefnan SNOW2025 er alþjóðleg ráðstefna um ofanflóðavarnir og ber nafnið:?

"The International Symposium on Mitigation Measures against Snow Avalanches? and other Rapid Gravity Mass Flows".
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við nefndarmenn, bæjarfulltrúa og starfsmann nefndar að kynna sér efni ráðstefnunnar.

13.Suðurtangi 24 - jarðvegsrannsókn - 2024080097

Lagt fram minnisblað Eflu ehf. dags. 23. apríl 2025 um niðurstöður gasmælinga á Suðurtanga 24.



Niðurstöður eru á þann veg að mælingar gefa með öðrum orðum til kynna að það sé annaðhvort mjög lítið magn lífræns efnis sem undirgengst niðurbrot á þessu dýpi og/eða að niðurbrotið sé á lokastigum. Gassamsetningin í holunum er miklu nær gassamsetningu andrúmslofts þar sem styrkur koldíoxíðs er almennt vel innan við 0,1%.
Lagt fram til kynningar

14.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 83 - 2504010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 83. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, sem var haldinn 14. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?