Vinnslutillaga á nýju deiliskipulagi, Hvítisandur í landi Þórustaða
baðhús og sánur, og viðburðarsána til hægri. Mynd: Efla
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar birtir til kynningar, vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Hvítasand ehf.,
dags. 26. febrúar 2026, uppdráttur og greinargerð, unnið skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr.
111/2021.
Á verslunar- og þjónustusvæðinu verður stofnuð lóð fyrir baðstað úr jörð Þórustaða, landnúmer 141035. Aðkoma að svæðinu verður frá Valþjófsdalsvegi nr. 625 um vegslóða sem fyrir er á jörðinni. Samhliða vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi fyrir baðstaðinn eru gerðar breytingar á aðalskipulagi og eru skipulagsáætlanirnar kynntar saman.
Markmið með breytingum eru m.a. að efla Holtsfjöru sem áfangastað fyrir gesti og heimafólk til að njóta einstakrar náttúru, útiveru bað- og strandferða, byggja upp áfangastað í ferðaþjónustu með hliðsjón af staðaranda svæðisins með mannvirkjum sem eru látlaus, í sátt við umhverfi sitt og staðsetningu, efla líf á áfangastað sem nú þegar er vinsæll áningarstaður heimamanna fyrir sjósund og strandarferðir.
Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina: skipulagsgatt.is, mál nr. 751/2025. Hægt að skila ábendingum og umsögnum við tillögugerðina, rafrænt um skipulagsgáttina frá 17. apríl 2026 til og með 15. maí 2026. Umhverfis- og eignasvið veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar við umsagnir. Vinnslutillagan verður einnig aðgengileg á uppdrætti og greinargerð með forsendum breytinga ásamt umhverfismatsskýrslu, á bæjarskrifstofum og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.
Opið hús verður haldið á Edinborgarhúsinu á Ísafirði, mánudaginn 4. maí 2026 kl. 17:00 til 19:00.
Vakin er athygli á því að aðeins er um að ræða vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi en ekki formlega auglýsingu.
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar