Útboð - þak Stjórnsýsluhússins á Ísafirði
Stjórn Stjórnsýsluhúss Ísafjarðar (kt. 530787-2659) óskar eftir tilboðum í endurbætur á þaki Stjórnsýsluhúsins á Ísafirði. Auglýsingin er birt af Ísafjarðarbæ, fyrir hönd stjórnar Stjórnsýsluhúss Ísafjarðar, sem er verkkaupi. Efla hf. annast framkvæmd útboðsins og gegnir hlutverki útboðshaldara fyrir hönd húsfélagsins
Helstu verkþættir eru:
- Fjarlægja þakklæðningu og krossvið
- Fjarlægja þakeinangrun á steyptir plötu
- Endurnýja læsta álklæðningu á þaki
- Endurnýja þakeinangrun
Helstu stærðir eru:
- Þakflötur er 750 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið 30. nóvember 2026.
Útboðsgögn verða einungis veitt á rafrænu formi. Beiðnir um afhendingu gagna, sem og fyrirspurnir vegna útboðsins, skulu berast á netfangið: ebi@efla.is
Útboðsgögn verða afhent frá og með 2.7.2026 kl. 9:00
Skilafrestur og opnun er 16. júl kl 11:00
Tilboðin verða opnuð í bæjarstjórnarsal Stjórnsýsluhúss Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 2. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.