Útboð - þak Stjórnsýsluhússins á Ísafirði

Stjórn Stjórnsýsluhúss Ísafjarðar (kt. 530787-2659) óskar eftir tilboðum í endurbætur á þaki Stjórnsýsluhúsins á Ísafirði. Auglýsingin er birt af Ísafjarðarbæ, fyrir hönd stjórnar Stjórnsýsluhúss Ísafjarðar, sem er verkkaupi. Efla hf. annast framkvæmd útboðsins og gegnir hlutverki útboðshaldara fyrir hönd húsfélagsins

Helstu verkþættir eru:

  • Fjarlægja þakklæðningu og krossvið
  • Fjarlægja þakeinangrun á steyptir plötu
  • Endurnýja læsta álklæðningu á þaki
  • Endurnýja þakeinangrun

Helstu stærðir eru:

  • Þakflötur er 750 m2

Verkinu skal vera að fullu lokið 30. nóvember 2026.

Útboðsgögn verða einungis veitt á rafrænu formi. Beiðnir um afhendingu gagna, sem og fyrirspurnir vegna útboðsins, skulu berast á netfangið: ebi@efla.is

Útboðsgögn verða afhent frá og með 2.7.2026 kl. 9:00
Skilafrestur og opnun er 16. júl kl 11:00

Tilboðin verða opnuð í bæjarstjórnarsal Stjórnsýsluhúss Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 2. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.