Óskað eftir tilboðum í vallarlýsingu
16.03.2026
Fréttir
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í hönnun og afhendingu á vallarlýsingu fyrir knattspyrnuvöll á Torfnesi á Ísafirði. Útboðið tekur til lampa, ljósamastra, ljósastýringar ásamt nauðsynlegri hönnun, prófunum og úttektum, í samræmi við útboðsgögn.
Helstu upplýsingar:
- Fyrirspurnarfrestur er til og með 30. mars 2026
- Skilafrestur tilboða er 7. apríl 2026 kl. 10:00
- Opnun tilboða er 7. apríl 2026 kl. 11:00
Útboðsgögn má sækja hjá Verkís, með því að senda tölvupóst á jbh@verkis.is. Fyrirspurnir skulu berast í samræmi við ákvæði útboðsgagna.