Óskað eftir tilboðum í vallarlýsingu

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í hönnun og afhendingu á vallarlýsingu fyrir knattspyrnuvöll á Torfnesi á Ísafirði. Útboðið tekur til lampa, ljósamastra, ljósastýringar ásamt nauðsynlegri hönnun, prófunum og úttektum, í samræmi við útboðsgögn.

Helstu upplýsingar:

  • Fyrirspurnarfrestur er til og með 30. mars 2026
  • Skilafrestur tilboða er 7. apríl 2026 kl. 10:00
  • Opnun tilboða er 7. apríl 2026 kl. 11:00

Útboðsgögn má sækja hjá Verkís, með því að senda tölvupóst á jbh@verkis.is. Fyrirspurnir skulu berast í samræmi við ákvæði útboðsgagna.