Opið fyrir umsóknir í vinnuskólann sumarið 2026

Opið er fyrir umsóknir í vinnuskóla Ísafjarðarbæjar sumarið 2026. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Vinnuskólinn er fyrir 14-16 ára unglinga (8.-10. bekk grunnskóla) og er starfræktur í allt að sex vikur á sumrin.

Starfstímabil vinnuskólans sumarið 2026 er frá 8. júní til og með 17. júlí.

  • 8. bekkur fær að hámarki vinnu í 4 vikur
  • 9. bekkur fær að hámarki vinnu í 5 vikur
  • 10. bekkur fær að hámarki vinnu í 6 vikur

Vinnutími er mánudag til föstudags milli 08:00 til 14:00. *Ekki er unnið á rauðum dögum.

Allar frekari upplýsingar veitir Dagný Finnbjörnsdóttir

https://www.isafjordur.is/is/ibuar/grunnskolaaldur/vinnuskolinn