Ný forvarnar- og lýðheilsustefna
15.05.2026
Fréttir
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt nýja Forvarnar- og lýðheilsustefnu sveitarfélagsins fyrir árin 2026–2031. Stefnan var lögð fram af velferðarnefnd að loknum 503. fundi nefndarinnar sem haldinn var 27. apríl 2026.
Markmið stefnunnar er að efla lýðheilsu og vellíðan íbúa með markvissum forvörnum, auknu samstarfi og aðgerðum sem stuðla að heilbrigðu og öruggu samfélagi fyrir alla aldurshópa.