Lára Ósk Albertsdóttir er nýr yfirþjálfari Íþróttaskóla Ísafjarðarbæjar
11.02.2026
Fréttir
Lára Ósk Albertsdóttir hefur tekið til starfa sem yfirþjálfari Íþróttaskóla Ísafjarðarbæjar. Lára er uppalin á Ísafirði og hefur reynslu af því að starfa með börnum, meðal annars á leikskóla og við þjálfun. Hún er í námi við Háskólann á Akureyri og hefur verið virk í fótbolta samhliða námi og vinnu.
Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar er fyrir öll börn 1.-4. bekkjar í grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Lögð er áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Yfirþjálfari Íþróttaskólans ber ábyrgð á daglegum rekstri hans ásamt samskiptum við foreldra, aðildarfélög, dægradvöl og börn í skólanum.
Við bjóðum Láru hjartanlega velkomna til starfa.