Fasteignagjöld 2026
Álagningarseðlar fasteignagjalda 2026 hafa verið birtir á www.island.is. Sundurliðun fasteignagjalda er eingöngu aðgengileg á álagningarseðli en ekki á greiðsluseðli.
Hægt er að fá aðstoð eða gera athugasemdir við innheimtu með því að senda tölvupóst á innheimta@isafjordur.is eða hringja í síma 450 8000.
Kærufrestur á álagningu er til 28. febrúar 2026.
Frekari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og greiðslufyrirkomulag má finna í samantekt um fasteignagjöld.
Fasteignagjöld eru innheimt mánaðarlega, fyrir utan fasteignagjöld sem eru 49.000 kr. eða lægri, þau eru innheimt með einum gjalddaga, 15. janúar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við að:
- fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum
- fá senda álagningarseðla
- senda inn erindi vegna fasteignagjalda
má fá með því að senda fyrirspurn á fasteignagjold@isafjordur.is eða í síma 450 8000.
Fasteignamat er framkvæmt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hækkaði um 8,9% frá árinu 2025.
Ef fasteignamat íbúðarhúsnæðis er skoðað eftir byggðakjörnum þá hækkaði fasteignamatið mest í fjölbýli á Flateyri, eða um 16,8%.
|
Matssvæði íbúðarhúsnæðis |
% breyting fyrir sérbýli |
% breyting fyrir fjölbýli |
|---|---|---|
|
Ísafjörður: Eldri byggð |
7,0% |
11,1% |
|
Ísafjörður: Nýrri byggð |
10,6% |
12,7% |
|
Hnífsdalur |
3,6% |
13,7% |
|
Suðureyri |
1,5% |
13,6% |
|
Flateyri |
0,2% |
16,8% |
|
Þingeyri |
10,8% |
14,0% |
|
Hornstrandir |
0,0% |
0,0% |
Fasteignagjöld sveitarfélagsins eru lögð árlega á flestar fasteignir í sveitarfélaginu sem metnar eru fasteignamati samkvæmt fasteignaskrá. Hlutfall fasteignaskatts lækkar á íbúðarhúsnæði árið 2026 og verður 0,48% af hús- og lóðarmati. Hlutfall fasteignaskatts af öðrum fasteignum verður áfram 1,65% af hús- og lóðarmati.
Heildarhækkun tekna vegna fasteignagjalda árið 2026 er 6,36% miðað við fasteignagjöld ársins 2025. Fasteignagjöld 2026 eru áætluð 1.098 m.kr.