Menntastefna Ísafjarðarbæjar í endurskoðun: kallað eftir umsögnum
Ísafjarðarbær vinnur að endurskoðun menntastefnu sveitarfélagsins. Eftir víðtækt samráð við aðila skólasamfélagsins er leitað eftir sjónarmiðum íbúa sem vilja láta sig menntamálin varða. Álit ykkar skiptir miklu máli og verður nýtt við áframhaldandi vinnu.
Drög að stefnunni hafa verið útbúin og næsta skref er kynning fyrir íbúa, þar sem þeim gefst kostur á að koma með athugasemdir við stefnuna.
Við óskum eftir svörum við eftirfarandi spurningum:
- Hvað finnst þér gott við stefnuna?
- Hvað finnst þér vanta eða mega betur fara?
- Annað sem þú vilt koma á framfæri?
Stefnan skiptir í sex hluta:
Öflugt skólasamfélag til framtíðar
Vellíðan, farsæld og inngilding
Gæðamenntun, nám og námsumhverfi
Mannauður, fagmennska og farsæl starfsþróun
Samstarf heimila, skóla og nærsamfélags
Skólasamfélag í stöðugri þróun
Íbúar geta kynnt sér stefnuna með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Athugasemdum skal skilað til sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, Hafdísar Gunnarsdóttur, á netfangið hafdisgu@isafjordur.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. júlí 2026.