Dagbók bæjarstjóra 2025: Vika 17

Dagbók bæjarstjóra dagana 28. apríl–4. maí 2025, í 17. viku í starfi.
Ég byrjaði vikuna í fjarvinnu þar sem ég þurfti að funda með bæjar- og sveitarstjórum sunnan heiða. Þannig að ég tók bæjarráðsfundinn á Teams og var annars að vinna upp tölvupósta sem höfðu safnast upp.
Fundur bæjar- og sveitarstjóra fór fram í uppsveitum Árnessýslu. Það var vel mætt, farið um sveitir og okkur kynnt ýmislegt. Við hittumst öll og fórum með rútu frá Hótel Geysi að Friðheimum í Reykholti, þar fræddumst við um starfssemina og snæddum hádegismat þar, tómatsúpu og brauð. Magnað að á Friðheima komu 280 þúsund manns á síðasta ári. Þá sóttum við málþing í félagsheimilinu Aratungu, Reykholti. Þóroddur Bjarnason, prófessor við HÍ fjallaði þar um byggðaþróun og búsetufrelsi og voru umræður góðar.
Í Friðheimum.
Á málþingi í Aratungu, Þóroddur Bjarnason í pontu.
Eftir málþingið fórum við í skoðunarferð um Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshrepp. Við komum við í nýrri slökkvistöð Brunavarna Árnessýslu á Laugarvatni þar sem Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri, tók á móti hópnum og kynnir starfsemi BÁ, ásamt nokkrum starfsmönnum. Þetta var mjög gagnleg heimsókn fyrir mig og fróðlegt spjall sem ég átti við Pétur og hans menn en við erum að fara að hefjast handa við að hanna og byggja slökkvistöð í Skutulsfirði en framkvæmdir hefjast á þessu ári, ef allt gengur upp.
Í slökkvistöðinni á Laugarvatni.
Við heimsóttum Gunnar Þorgeirsson og Sigurdísi Eddu Jóhannesdóttur í Garðyrkjustöðinni Ártanga í Grímsnes- og Grafningshreppi en þau rækta kryddjurtir, sumarblóm og ýmislegt fleira. Við enduðum fyrri daginn með heimsókn í Sólheima í Grímsnes- og Grafningshreppi, Valgeir Backman tók á móti hópnum, við röltum um staðinn, kíktum í verslunina Völu og í gamla Sólheimahúsið. Þá var snæddur kvöldverður í Vigdísarhúsi, kótilettur í raspi með tilheyrandi.
Basilikuræktun í Ártanga.
Túlipanar á Ártanga.
Morguninn eftir fórum við í skoðunarferð um Hrunamannahrepp með rútu frá Hótel Geysi um Brúarhlöð að Flúðum. Þar var fyrsta stopp á Seyrustöðum. Þar er starfsemi sex sveitarfélaga sem snýr að hreinsun rotþróa og verkun seyru til áburðar, Nanna Jónsdóttir, Umhverfis- og tæknisiði uppsveita tók á móti hópnum og sagði frá starfsseminni. Seyran sem fellur til er notuð til uppgræðslu á hálendinu. Þá heimsóttum við Límtré-Vírnet á Flúðum, þetta er gamalt og gróið fyrirtæki sem framleiðir límtré og yleiningar.
Límtré.
Yleining hjá Límtré-Vírnet.
Þá var farið í heimsókn til Flúðasveppa, þar fengum við kynningu á starfsseminni, fengum að ganga í gegnum sveppaklefa og í lokin borðuðum við hádegismat þar. En Flúðasveppir reka Bistro þar sem í boði er hlaðborð, sveppasúpu og meðlæti. Þá er lítil búð þarna þar sem hægt er að kaupa sveppamassa og mold en eftir að sveppirnir hafa verið ræktaðir er sveppamassinn sem sveppurinn vex í tættur og þá er hann fínasti jarðvegsbætir.
Í sveppaklefa, það er verið að uppskera sveppi úr hverri hillu í 3 vikur, samtals er ferlið 6 vikur frá því að massinn er blandaður, grói sáð og þar til allt er búið.
Eftir þetta góða stopp á Flúðum ókum við yfir í Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Þar kíktum við á Hjálparfoss og fórum svo í Þjórsárdalsskóg þar sem tók við létt gönguferð í skóginum undir leiðsögn Bergs Björnssonar sem er gamall vinnufélagi frá Landgræðsluárunum. Þá var farið í Félagsheimilið Árnes, þar var góð kynning á starfsemi Korngrís frá Laxárdal. Þetta var fínasti dagur sem endaði svo á kvöldverði á Hótel Geysi.
Bæjar og sveitarstjórar og makar við Hjálparfoss.
Í Þjórsárdal.
Ég var afskaplega ánægð með þessa daga, gott að hitta aðra bæjar- og sveitarstjóra, mynda tengsl og ræða málin. Takk fyrir góða skipulagningu og utanumhald Aldís, Ásta, Fjóla og Sylvía! Við Dúi nýttum svo 1. maí í að keyra vestur.
Föstudagurinn var annasamur á skrifstofunni, í nægu að snúast. En ferðalög voru þó ekki búin þar sem systursonur minn var fermdur á Akureyri um helgina og því var brunað norður á föstudagskvöld í heimahagana í Skagafirði þar sem við hittum fólkið mitt. Það var ljúft. Svo var ekið í bað í skógarböðunum á sunnudagsmorgni, skildustopp í innbænum, í Brynju, farið í fermingu og nú þegar þetta er skrifað erum við leið heim.
Sólarlagið eins og það birtist á heimili foreldra minna í Hjaltadal, Skagafirði.
Framundan er spennandi vika, nóg að gera og ekkert flakk á kerlu út fyrir Kjálkann næstu vikur. Heima er best.