Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1323. fundur 28. apríl 2025 kl. 08:10 - 09:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Magnús Einar Magnússon varamaður
    Aðalmaður: Gylfi Ólafsson
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Kristján Þór Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Aðkoma Ísafjarðarbæjar að íþróttasviði MÍ - 2025030190

Á 1320. fundi bæjarráðs, þann 31. mars 2025, var lagt fram erindi Heiðrúnar Tryggvadóttur, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, dags. 21. mars 2025 þar sem óskað er eftir styrk vegna afreksíþróttabrautar skólans. Einnig var lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundanefndar, dags. 25. mars 2025 sem varðar aðkomu Ísafjarðarbæjar að afreksíþróttabrautinni frá árinu 2018. Bæjarráð fól bæjarstjóra að ræða við bréfritara.



Er nú lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 23. apríl 2025, þar sem lagt er til við bæjarráð að samþykkja samning sveitarfélagsins við Menntaskólann á Ísafirði, um stuðning við íþróttasvið MÍ, en samningurinn gildir 2025-2029.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samning sveitarfélagsins við Menntaskólann á Ísafirði, um stuðning við íþróttasvið MÍ, en samningurinn gildir 2025-2029.
Hafdís yfirgaf fund kl. 8:18.

Gestir

  • Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:10

2.Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 2025040163

Lögð fram til samþykktar tillaga bæjarstjóra um að stofna nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, auk erindisbréfs fyrir nefndina.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að stofna nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, og að erindisbréfs fyrir nefndina verði samþykkt, með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

Þá er lagt fyrir bæjarstjóra að útbúa viðauka vegna málsins og leggja fram til samþykktar á næsta fundi bæjarráðs.
Axel yfirgaf fund kl. 8:36.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs

3.Ívilnanaheimildir A.6 Aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði - 2024110071

Á 1304. fundi bæjarráðs, þann 25. nóvember 2024, var lagður fram tölvupóstur Reinhards Reynissonar f.h. Byggðastofnunar, þar sem upplýst er um stöðu mála varðandi nýtingu ívilnanaheimilda í lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020 ásamt tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra um nýtingu ívilnanaheimildanna og svæðaskilgreiningu Byggðastofnunar skv. 1. mgr. 28. gr. laganna. Á fundinn mættu Lúðvík Þorgeirsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, og Hildur Elísabet Pétursdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Bæjarráð óskaði eftir þarfagreiningu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og fól bæjarstjóra að ræða við Byggðastofnun vegna málsins.



Á 1306. fundi bæjarráðs, þann 3. mars 2025 var lögð fram þarfagreining Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, dags. 26. febrúar 2025, vegna ívilnana námslána til að bregðast við skorti á heilbrigðisstarfsfólki og þarfa íbúa heilbrigðisumdæmisins fyrir heilbrigðisþjónustu skv. mati stjórnanda Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.



Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram, en jafnframt að kanna hug annarra sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum til þátttöku í verkefninu.



Er nú lögð fram til samþykktar tillaga bæjarstjóra um að óskað verði eftir að ráðherra auglýsi viðkomandi svæði sem gjaldgengt fyrir ívilnanir samkvæmt 28. gr. laga nr. 60/2020 og hefji beitingu ívilnana í samræmi við verklagsreglur og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar, sbr. skýrslu útg. júlí 2024.

Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir því við að ráðherra að auglýsa svæði norðanverðra Vestfirði sem gjaldgengt fyrir ívilnanir samkvæmt 28. gr. laga nr. 60/2020 og hefji beitingu ívilnana í samræmi við verklagsreglur og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar, sbr. skýrslu útg. júlí 2024.

4.Rannís - Netöryggisstyrkur Eyvarar - 2025030086

Lagt fram til samþykktar minnisblað Steinars Darra Emilssonar, verkefnastjóra tæknilausna og innkaupa, dags. 22. apríl 2025, þar sem upplýst er um styrk að fjárhæð kr. 9.000.000, sem Ísafjarðarbær sótti um í sjóð Eyvarar NCC-IS, á vegum RANNÍS. Um er að ræða verkefni tengt netöryggi sveitarfélagsins, eflingu þekkingar starfsmanna og íbúa sveitarfélagsins. Mótframlag nemur að hámarki kr. 1.800.000, sem er fyrst og fremst vinnuframlag starfsfólks.



Óskað er eftir samþykki bæjarráðs fyrir framangreindu mótframlagi ásamt því að heimila undirritun samnings við RANNÍS vegna styrkveitingarinnar.

Bæjarráð samþykkir viðtöku styrksins ásamt mótframlagi sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að undirrita samning við Rannís vegna styrkveitingarinnar.

5.Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2024 - 2025020192

Lagður fram til samþykktar ársreikningur Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2024. Jafnframt lögð fram til kynningar ársskýrsla Ísafjarðarbæjar 2024.
Bæjarráð samþykkir ársreikning Ísafjarðarbæjar 2024, og vísar til afgreiðslu og fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Edda María yfirgaf fund kl. 9:06.

6.Þjónustustefna 2023-2026 - 2022110084

Lagt fram til samþykktar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 23. apríl 2025, vegna þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar, en drög að kynningu liggur fyrir, eftir vinnufund bæjarfulltrúa.



Lagt er til að næsta skref verði að halda íbúafundi á Þingeyri, Suðureyri og Flateyri, dagana 26., 27. og 28. maí nk. þar sem kortlagning og grunnefni stefnunnar verði til kynningar og umræðu, meðal bæjarfulltrúa og íbúa. Lagt er til að fundarstjórn verði í höndum starfsmanns Vestfjarðastofu. Jafnframt verði rafrænir miðlar nýttir, s.s. Betra Ísland.is, þar sem öllum íbúum gefst færi á að láta rödd sína heyrast, um einstaka þjónustuflokka eða stefnuna í heild.

Bæjarráð samþykkir tillögu skv. minnisblaði, og að næstu skref verði að halda íbúafundi á Þingeyri, Suðureyri og Flateyri, dagana 26., 27. og 28. maí nk. þar sem kortlagning og grunnefni stefnunnar verði til kynningar og umræðu, meðal bæjarfulltrúa og íbúa. Lagt er til að fundarstjórn verði í höndum starfsmanns Vestfjarðastofu. Jafnframt verði rafrænir miðlar nýttir, s.s. Betra Ísland.is, þar sem öllum íbúum gefst færi á að láta rödd sína heyrast, um einstaka þjónustuflokka eða stefnuna í heild.

7.Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - sumarfrí bæjarráðs - 2022050136

Tillaga bæjarstjóra um að sumarleyfi bæjarráðs verði 21. og 28. júlí 2025, nema upp komi mál sem ekki þola bið, þá verði boðað til fundar.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að sumarleyfi bæjarráðs verði 21. og 28. júlí 2025, nema upp komi mál sem ekki þola bið, þá verði boðað til fundar.

8.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2025 - 2025020111

Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 11. apríl, um launakostnað fyrir janúar til mars árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

9.Frumvarpsdrög um breytingar á lögum um veiðigjald- Athugasemdir - 2025040156

Lagt fram til kynningar erindi Benedikts Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa, f.h. Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, dags. 15. apríl 2025 um athugasemdir Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi vegna frumvarpsdraga um breytingar á lögum um veiðigjald, auk fylgigagna.
Lagt fram til kynningar.

10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2025 - sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum) - 2025010004

Lagt fram erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 14. apríl 2025, Þar sem umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 272. mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum). Umsagnarfrestur er til og með 28. apríl 2025 á umsagnagátt Alþingis.
Lagt fram til kynningar.

11.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2024-2025 - 2025010229

Lagðar fram til samþykktar 3 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Bæjarráð staðfestir meðfylgjandi 3 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024/2025.

12.Virkir ferðamátar og smáfarartæki - starfhópur - 2025040166

Lagt fram erindi Hrefnu Hallgrímsdóttir, sérfræðings, f.h. Innviðaráðuneytisins dags. 16. apríl 2025 um starfshóp á vegum Innviðaráðuneytis sem vinnur tillögu að stefnu fyrir virka ferðamáta og smáfarartæki, starfshópurinn óskar eftir ábendingum frá viðeigandi sérfræðingum sveitarfélaga um hvernig er hægt að bæta stöðu ferðamátanna, þar með talið öryggi og aðgengi. Svörum skal skila 28. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

13.Þátttaka í bakhóp - efling öryggis kjörinna fulltrúa - 2025040167

Lagt fram erindi Sambands Íslenskra sveitarfélaga dags. 22. apríl 2025 um bakhóp til ráðgjafar og stuðnings við framkvæmd verkefnis sem miðar að því að efla öryggi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og stuðla að starfsumhverfi sem einkennist af virðingu og fagmennsku. Áhugasamir aðilar um þátttöku í bakhópnum eru beðnir um að vera í sambandi við Freyju Sigurgeirsdóttur hjá Sambandinu.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2025. - 2025020184

Lögð fram til kynningar er fundargerð 152. fundar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða dags. 10. apríl 2025. Jafnframt er lögð fram ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vestfjarðasvæðis fyrir árið 2024.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.

15.Fundargerðir 2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2025010017

Lögð fram til kynningar fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 4. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

16.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir og ýmis erindi 2025 - 2025040016

Lögð fram til kynningar er fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 15. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

17.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir og ýmis erindi 2025 - 2025040016

Lagðar fram til kynningar eru fundargerðir 85., 86. og 87. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldnir voru 19. mars 2025, 28. mars 2025 og 1. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

18.Fjallskilanefnd - 18 - 2504016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar fjallaskilanefndar, en fundur var haldinn 22. apríl 2025.



Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?