Auglýsing um styrk til greiðslu fasteignagjalda félagasamtaka 2025
03.02.2025
Fréttir

Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Félög eða félagasamtök í Ísafjarðarbæ, sem eiga húsnæði þar sem eingöngu fer fram starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- og/eða mannúðarstarf, hafa heimild til að sækja um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
Hámarksstyrkur til hvers félags er 130.000 kr. á ári. Ekki er veittur styrkur til greiðslu þjónustugjalda, svo sem lóðarleigu, vatnsgjalds og sorpgjalds.
Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 28. febrúar 2025.