Auglýsing - Neðsti kaupstaður útisvæði
22.04.2026
Fréttir
Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilboðum í endurnýjun og uppbyggingu útisvæðis við Neðsta kaupstað á Ísafirði.
Verkið felur m.a. í sér jarðvinnu, uppbyggingu aðkomu- og dvalarsvæða, smíði skjólveggja, timburstíga og timburpalla, yfirborðsfrágang, gróðurfrágang, sem og lagningu raf- og lagnakerfa í samræmi við útboðsgögn og verklýsingu.
Helstu dagsetningar:
- Útboðsgögn afhent frá: 22. apríl 2026
- Frestur til fyrirspurna: 29. apríl 2026
- Frestur til skilatilboða: 6. maí 2026 kl. 11:00
- Opnun tilboða: 6. maí 2026 kl. 11:00
- Verklok: 1. september 2026
Tilboðum skal skilað í samræmi við nánari ákvæði útboðsgagna.
Þeir sem óska eftir útboðsgögnum og vilja senda fyrirspurnir vegna útboðsins skulu beina þeim til Verkís hf. á netfangið aj@verkis.is.