Auglýsing - Neðsti kaupstaður útisvæði

Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilboðum í endurnýjun og uppbyggingu útisvæðis við Neðsta kaupstað á Ísafirði.

Verkið felur m.a. í sér jarðvinnu, uppbyggingu aðkomu- og dvalarsvæða, smíði skjólveggja, timburstíga og timburpalla, yfirborðsfrágang, gróðurfrágang, sem og lagningu raf- og lagnakerfa í samræmi við útboðsgögn og verklýsingu.

Helstu dagsetningar:

  • Útboðsgögn afhent frá: 22. apríl 2026
  • Frestur til fyrirspurna: 29. apríl 2026
  • Frestur til skilatilboða: 6. maí 2026 kl. 11:00
  • Opnun tilboða: 6. maí 2026 kl. 11:00
  • Verklok: 1. september 2026

Tilboðum skal skilað í samræmi við nánari ákvæði útboðsgagna.

Þeir sem óska eftir útboðsgögnum og vilja senda fyrirspurnir vegna útboðsins skulu beina þeim til Verkís hf. á netfangið aj@verkis.is.