Áramótabrennur 2024
27.12.2024
Fréttir
Áramótabrennur verða á Flateyri, Hnífsdal, Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri kl. 20:30 á gamlársdagskvöld, að því gefnu að veður leyfir.
Brennurnar verða staðsettar á eftirfarandi stöðum:
- Við smábátahöfnina á Flateyri
- Á Árvöllum í Hnífsdal
- Á Hauganesi á Ísafirði
- Á Hlaðnesi fyrir innan lónið á Suðureyri
- Við víkingasvæðið á Þingeyrarodda